Grasið er grænt hjá Sjálfstæðisflokknum
Í nýlegri skoðanakönnun kom í ljós að fylgi Sjálfstæðisflokksins er langminnst meðal ungra kjósenda, og er veruleg hætta á að vinstri stjórn nái hér völdum eftir kosningar. Þegar maður sér hversu lágt Sjálfstæðisflokkurinn skorar hjá ungu fólki veltir maður fyrir sér hvað sé að klikka. Erfitt er að sjá hvar sú stefna sem flokkurinn stendur fyrir nær ekki til ungs fólks. En þá rennur upp fyrir manni, að nánast enginn ungur kjósandi þekkir vinstri stjórn, heyrir í fréttum gífuryrði pólitískra andstæðinga flokksins að stefna Sjálfstæðisflokksins sé gjaldþrota og sú „nýfrjálshyggja“ sem við lýði hafi verið í 18 ár hafi komið þjóðinni á bólakaf! Þegar slíkar rökleysur berast ungu fólki er skiljanlegt að einhverjir hugsi að viðmælandinn mæli af stakri snilld og grasið sé svo sannarlega grænna hinum megin – Vinstra megin. Þar er grasið hinsvegar ekki grænt, heldur má frekar finna þeim samleið með súru heyi.
Koma þarf ungu fólki í skilning um alla þá vitleysu sem fylgir því að kjósa yfir sig vinstri stjórn. Lausnirnar liggja ekki í því að loka landinu, halda bönkum í eigu ríkisins og reka fráleita forræðishyggju. Með frelsinu sem fylgt hefur stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins hefur ungt fólk fengið fjölmörg tækifæri á silfurfati, og fyrir varðveitingu frelsisins og jafnra tækifæra stendur Sjálfstæðisflokkurinn. 1. febrúar tók við minnihlutastjórn sem bjarga átti öllu. Hinsvegar eyddi hún 30 dögum í að afgreiða eitt frumvarp. Snérist það um að koma hjólum atvinnulífsins í gang? Nei, það snerist um að koma gömlum pólitískum andstæðingi frá Seðlabankanum. Forgangsröðunin er engin. Kröfunni um endurnýjun er hvergi betur svarað en hjá Sjálfstæðisflokknum. Nýr formaður mun taka við í lok mars, og er fyrirséð að þrír leiðtogar munu hverfa af hinu pólitíska sviði. Í prófkjörum flokksins má sjá ung og fersk andlit, og gefst flokksmönnum kostur á að velja nýtt fólk í öllum kjördæmum. Samfylkingarmenn eru hinsvegar á hnjánum þessa daganna, og krefja nær sjötugan aldursforseta Alþingis að leiða flokkinn í gegnum kosningar.
Fyrir mér er valið augljóst. Sjálfstæðisflokkurinn er skynsamasta valið í kosningunum í vor, og sjálfstæðisstefnan rökrétta leiðin úr þeim djúpa dal sem við erum komin í. Næstkomandi vikur verða spennandi, heyjuð verður snörp kosningabarátta, svo nýta verður tímann vel. Það er okkar ungliðanna að fá aðra til liðs við okkur, og það gerist ekki með hendur í vösum.
Benedikt Hallgrímssonformaður Týs