Fótboltasumarið 2009
Nú þegar Lengjubikarinn er kominn af stað fer maður óumflýjanlega að spyrja hvernig deildin verður í sumar. Allt stefnir í vægast sagt áhugavert fótboltasumar, búið er að segja upp samningum hjá nánast öllum útlendingum í deildinni og aðeins örfá lið sem enn geta leyft sér þann munað. Styrktaraðilar eru á bak og brott og úrvalsdeildin mun ekki heita Landsbankadeildin.
Lítur út fyrir að fótboltafélögin séu að verða ansi illa úti í kreppunni, öll nema Valur sem getur ekki hætt að kaupa. Knattspyrnufélög reiða sig að miklum hluta á styrki og þegar skrúfað verður fyrir styrkina sitja félögin uppi með enga peninga og óuppgerð launamál.
Lítið er í stöðunni fyrir félögin nema að hækka miðaverð á leiki, hækka æfingagjöld og segja upp samningum.
Eru þetta ekkert sérstaklega sniðugar lausnir, því að kaupmáttur er búinn að dragast saman og ef ákveðið verður að hækka miðaverðið er líklegt að fólk finnist einfaldlega of dýrt og hætti að mæta. Sem myndi leiða til minni tekna. Sama gildir um æfingagjöldin.
Hvað uppsagnir á samningum varðar myndi það lækka gæði íslenskrar knattspyrnu. Verri knattspyrna = Verri miðasala = Minni tekjur.
Liggur það ljóst að félögin þurfa meiri tekjur til þess að rekstur félaganna fari ekki einfaldlega á hlið.
Er ég með tvær tillögur til þess að auka tekjur félaganna.
1. Spilað verði á fimmtudögum. Fólk er frekar til í að skella sér á völlinn ef leikið er á fimmtudögum. Þetta sést vel ef skoðaðar eru leikskýrslur frá síðasta ári yfir fjölda áhorfenda. Kominn er svona semí föstudagur í fólk og þá myndast miklu betri stemning.
2. Leyfð verði bjórsala á leikjum. Er þetta leyfilegt í útlöndum og er vinsælt. Ekki aðeins væru félöginn að næla sér í góðar aukatekjur heldur væri einnig verið að stórbæta stemninguna.
Leikmannasamtökin reyndu að fá það fram núna fyrr á árinu að leikið verði á fimmtudögum og náðu þeir einhverjum árangri. KSÍ var með þá skýringu að ekki væri unnt að leika á fimmtudögum því að þeir séu opinberir leikdagar. Það eru 5 lið í keppninni sem taka þátt í Evrópukeppninni og gef ég því lítið fyrir þessa skýringu. Held ég að þetta sé forsjáhyggja að hálfu KSÍ, að þeir haldi að ef leikið sé á fimmtudögum fari leikmenn á fyllerí um helgar og fylli íþróttfréttirnar af slúðurfréttum og komi óorði á íslenska knattspyrnu. Tel ég það ekki hlutverk KSÍ að velta því fyrir sér hvað leikmenn geri í sýnum frítíma.
Þykir mér ekki ljóst af hverju bjórinn er ekki leyfður. Hann var eitthvað seldur í einhverjum VIP herbergjum á Laugardalsvelli. Fór það fyrir brjóstið á einhverjum og var talað um að áfengi og íþróttir ættu ekki saman. Mögulega er þetta rétt, því allt síðasta sumar sá maður Takefusa með góða bjórbumbu og var það honum ekki til framdráttar inni á vellinum. En það breytir því ekki að íþróttaáhorf og bjór eiga einstaklega vel saman. Sé ég enga ástæðu af hverju bjórsala ætti ekki að vera leyfð á leikjum í sumar.
Ef leikið sé á fimmtdögum og bjór leyfður myndi jafnvel myndast stemning á leik á Laugardalsvelli.
Áfram Breiðablik.
Sindri Jónsson