Er vinstri stjórn betri eða verri kostur ?

Að vera hægri sinnaður í dag er að vera frjálshyggjumaður, eða andstæður vinstri stefnu sem ég ætla líka að koma aðeins inn á. Upprunalega kemur þessi hægri og vinstri aðgreining frá Frakklandi, eftir því hvernig sætaskipan var á stéttarþinginu í frönsku byltingunni þar sem konungssinar sátu hægra megin við forsetastólinn. Hinn upprunalegi hægri maður er íhaldsamur, vildi ekki breyta neinu og hafa allt eins og hann var vanur og þekkti, meðan hinn upprunalegi vinstri maður vildi róttækar breytingar og frelsi. Þessi merking hefur snúist algjörlega við í okkar samfélagi . Nú er það frelsi einstaklingsins og frelsi til athafna sem einkennir hægri stefnuna á meðan vinstri stefnan er eiginlega jafnaðarstefna eða eins og við þekkjum það betur sem sósíalisma .Er hægt að nota skala eins og vinstri og hægri til að skilgreina ólíka stjórnmálaflokka?
Sjálfstæðisflokkurinn er breið fylking og hann markar sig beint fyrir miðju og fer svo alla leið í til hægri, Sjálfstæðisflokkurinn er almennt skilgreindur sem hægri flokkur. Það sem einkennir hann er frelsisstefnan, allir eiga að fá sitt frelsi og vera lausir við að ríkið skipti sér af öllu og taki allan auka gróða sem kemur inn á heimilið eða inn í fyrirtækið. Vinstri flokkar eru flokkar eins og Samfylkingin og Vinstri grænir. Samfylkingin t.d vill að allir séu jafnir, jafnaðarstefnan. Eru allir jafnir ef einhverjir þurfa að borga meiri skatta? Á maður ekki að uppskera eins og maður sáir? Fólk sem hefur stritað allt sitt líf, borgað upp sín hús og er loksins að koma á góðu árin, á þetta fólk að fara að borga eignarskatt eða fasteignaskatt? Afhverju má þetta fólk ekki eiga sín hús, bíla og kannski sumarbústaði í friði? Ef þú lendir í því óhappi að þurfa skurðaðgerð, hvort sem það sé smávægilegt eða alvarlegt, þá er væntanlega skurðlæknir sem sér um þig, skurðlæknir sem hefur lært í mörg ár til að tileinka sér það að hjálpa fólki. Hann þarf að borga hátekjuskatt, af því að hann lagði það á sig að læra eitthvað almennilegt til að fá gott starf. Auðvitað eru til fullt af undantekningum, t.d ofurlaun bankamanna á sínum tíma, en flest fólk sem er með laun yfir 500.000 á mánuði, er fólk sem hefur tekið sér tíma og eytt peningum í lærdóm, því nám er fjárfesting, svo er líka fólk sem er t.d. í tveimur vinnum til að borga niður himinháar skuldir. Á að skylda þetta fólk til að borga skatta af sínum launum sem þau hafa unnið hörðum höndum fyrir?
Gömlu Sovétríkin voru líka með vinstri stefnu, gekk það vel? Með hægri stefnu hefur Ísland þróast frábærlega, þessi kreppa sem að á að vera Sjálfstæðisflokknum ,, að kenna‘‘ er tímabundin og ótrúlega slæm. Komumst við uppúr kreppunni með vinstri stjórn, stjórn sem vill halda aftur, taka allan auka pening sem kemst inn á heimilin í skatt? Kjósum frelsið, kjósum alvöru jafnrétti.
Sigrún Kristjana Hjartardóttirstjórnarmaður Týs