Greinar
13. apríl 2009 › 00:36

Bankamennirnir sem lærðu aldrei sögu

Gísli ÓskarssonÞað vita flestir að ástæðan fyrir því að við lærum sögu er svo að við endurtökum hana ekki. Það hefur greinilega vantað athygli hjá bankamönnum veraldarinnar þegar þeir voru í skóla því kreppan í dag hófst á sama hátt og „Kreppan mikla“ sem skall á árið 1929.

Það sem gerðist þá var að verðbréfamarkaðurinn var yfirfullur af lánsfé sem ótraustir bankar voru að gefa út eins og sælgæti og að lokum var svo komið fyrir að markaðurinn gat einungis forðast hrun með því að halda áfram sama hraða vexti. Auðvitað entist það ekki og markaðurinn kolféll með hrikalegum afleiðingum fyrir lönd heimsins og þá skall á kreppa.

Hljómar kunnulega? Já það er kannski af því að þetta var að gerast aftur núna rétt fyrir bankahrunið. Bankarnir voru að gefa út lánsfé til allra sem báðu um það og fengu svo meira lánsfé frá öðrum bönkum til þess að lána. Hlutabréfamarkaðir í sögulegum hæðum og voru að rjúka upp þangað til þeir kolféllu, nákvæmlega eins og þeir gerðu fyrir 80 árum.

Gísli Óskarsson
varastjórnarmaður Týs
Deila á Facebook