Greinar
17. apríl 2009 › 16:42

Okkur verður ekki hjálpað með aukinni skattbyrði

Rafn SteingrímssonÞað er ótrúlegt að hlusta á málpípur vinstriflokkanna þessa dagana. Þeir boða í sífellu hærri skatta og leyfa sér að kynna það sem einhverja ábyrga lausn á vandanum sem steðjar að þjóðinni. Í sömu orðræðu leyfa þeir sér að benda á Sjálfstæðisflokkinn sem boðbera óábyrgra lausna í skattamálum.

Í raun er þetta kolrangt hjá þeim.

Hver maður hlýtur að sjá það, að hækka skatta getur ekki verið lausn fyrir heimilin eða atvinnulífið, sem nú þegar standa frammi fyrir miklum fjárhagslegum vanda.

Þeir sem sitja í ríkisstjórn eru því miður ekki að hugsa um atvinnulífið eða einstaklingana í landinu þegar þeir lýsa yfir jafn óábyrgum aðgerðum. Þessar aðgerðir eru líklega aðeins til þess fallnar að fullnægja brengluðum hugmyndum þeirra um jöfnuð. Þeir einblína á stöðu ríkissjóðs án þess að gera sér grein fyrir því hvaðan peningarnir koma.

Sjálfstæðismenn eru þeir sem hafa ábyrga afstöðu í skattamálum. Sjálfstæðisflokkurinn gerir sér grein fyrir því að það er ekki hægt að hjálpa fólki með því að láta það borga meira.

Til þess að skilja rökvillu þeirra er gott að skoða málin í smærra samhengi:

Ef við hugsum okkur bóndann Jón og kúnna Búkollu. Búkolla er mjólkurkýr sem skilar af sér ákveðnu magni af mjólk á dag sem Jón getur selt fyrir 10.000 kr. Af þessum 10.000 kr. þarf Jón að greiða 30%, eða 3.000 kr. í skatt og restina notar hann svo í að sjá fyrir sjálfum sér og kaupa fóður handa Búkollu.

Allt í einu gerist það að verð á fóðri hækkar. Það þýðir að Jón getur ekki keypt jafn mikið fóður og hann gerði áður. Af þeim sökum fer Búkolla að skila af sér minni mjólk en hún gerði áður og tekjur Jóns skerðast. Jón fær nú um 8.000 kr. á dag.

Vinstrimaðurinn, Skattman fjármálaráðherra, fyllist skelfingu við þessar fréttir, þar sem Jón er aðeins farinn að greiða 2.400 kr. í skatt og ákveður í óðagoti að hækka skattinn á Jón í 38%, svo að hann fari að skila svipuðum tekjum í ríkissjóð og hann gerði áður. Eftir þessa skattahækkun hefur Jón ekki lengur efni á því að kaupa nægilega mikið fóður fyrir Búkollu með þeim afleiðingum að hún deyr og við það missir Jón allar tekjur, fer á atvinnuleysisbætur, hættir að skila tekjum í ríkissjóð og fer í raun að vera kostnaðarliður fyrir ríkið.

Eftir á að hyggja hefði Skattman að sjálfsögðu frekar átt að lækka skattana á Jón, sem hefði gert það að verkum að Jón gæti keypt meira fóður svo að Búkolla færi nú að mjólka meira. Við það hefði skattstofn ríkisins styrkst.

Kjósum ekki yfir okkur þessa vitleysu. Kjósum flokk atvinnulífsins og heimilanna. Kjósum Sjálfstæðisflokkinn.

Rafn Steingrímsson
gjaldkeri Týs
Deila á Facebook