Hvaða alþingismaður fékk 15 milljónir?
Undanfarin misseri hefur verið merkilegt að fylgjast með málflutningi fjölmiðla. Sumir aðilar virðast algjöra hafa hlotið náð þeirra á meðan að aðrir eru gagnrýndir á mjög ósanngjarnan hátt.
Einn maður hefur við hvert tækifæri sem hann fær í fjölmiðlum hreykt sér af sínum „afrekum“ í núverandi minnihlutastjórn. Þessi maður er Steingrímur J. Sigfússon. Það sem hann vill mjög oft tala um eru þær breytingar sem hann hefur gert á eftirlaunafrumvarpinu svokallaða.
Það sem fæstir vita hins vegar er að í 23. gr. frumvarpsins sem tók gildi 30. desember 2003 er gert ráð fyrir að formenn stjórnarandstöðuflokkanna fái 50% álag ofan á þingfararkaupið sitt. Frá því að þetta tók gildi þangað til að nýja minnihlutastjórnin var mynduð núna í ár liðu 61 mánaðamót. Allan þann tíma sat Steingrímur sem formaður Vinstri grænna. Þetta þýðir einfaldlega það að Steingrímur J. Sigfússon hefur þegið rúmar 15.000.000 kr. í aukatekjur fyrir störf sín á þingi. Þess vegna er það algjörlega ólíðandi að þessi sami maður skuli voga sér að koma fram eins og einhver riddari réttlætisins sem breytti eftirlaunafrumvarpinu. Flestir myndu kalla þetta hræsni af hans hálfu, enda var hann á sínum tíma flutningsmaður þessa frumvarps og ákveður síðan að breyta því um leið og það er hætt að þjóna hagsmunum hans.
Þá er líka skemmtileg staðreynd að sá maður sem hefur líklegast mest orðið fyrir aðkasti fjölmiðla undanfarna mánuði hefur engin eftirlaun þegið. Þessi maður heitir Davíð Oddsson. Hann hefur átt rétt á þeim síðan í október 2005 en ólíkt Steingrími afþakkaði Davíð þessi sérréttindi sín. Hver er sá siðspillti?
Birtist í Týsdegi 17. apríl 2009
Egill Örn Gunnarssonvaraformaður Týs