Hvor ætlar að gefa eftir?
Þá hefur Samfylkingin tekið afdráttarlausa afstöðu til Evrópusambandsins. Sú afstaða hefur í gegnum árin verið mis-sýnileg í kosningabaráttu flokksins. Aðild að Evrópusambandinu var stærsta kosningabaráttumál Samfylkingarinnar fyrir kosningarnar 2003, en í kosningunum 2007 voru málefnin lögð til hliðar til þess að halda öllum ríkisstjórnarmöguleikum opnum. En fyrir þessar kosningar á að fara aftur í gamla gírinn. Á ársfundi Seðlabanka Íslands sagði Jóhanna Sigurðardóttir að það væri forgangsverkefni næstu ríkisstjórnar að sækja um aðild að Evrópusambandinu og taka upp Evru.
Samkvæmt nýjustu skoðanakönnun er framtíðin svört fyrir íslenska þjóð. Vinstri flokkarnir njóta samanlagt tæplega 60% fylgis. Á landsfundi Vinstri Grænna nýverið var samþykkt að hafna hugsanlegu ríkisstjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn og leitast frekar við að halda núverandi vinstri stjórn gangandi. En landsfundurinn hjá þeim snérist ekki aðeins og um pólitísk bónorð, heldur var stefna flokksins einnig mótuð og endurskoðuð. Í stefnu flokksins í alþjóðamálum er eftirfarandi klausa varðandi aðild að Evrópusambandinu:
Hugsanlegur ávinningur af aðild Íslands að Evrópusambandinu réttlætir ekki frekara framsal á ákvörðunarrétti um málefni íslensku þjóðarinnar og er aðild að Evrópusambandinu því hafnað.
Þar höfum við það. Vinstri grænir, sem vilja ekkert annað en vinstri-stjórn, hafna aðild að Evrópusambandinu. Það verður áhugavert að fylgjast með viðræðum flokkanna eftir kosningar, fari þær jafn illa og skoðanakannanir gefa til kynna. Mun Samfylkingin sópa Evrópusambandsumsókn undir teppið? Eru ráðherraembætti og völd mikilvægari en málefnin í augum vinstri grænna? Er jafnvel hægt að fá þá til að skipta skoðun með því að gefa forsætisráðherraembættið til Steingríms? Ég býst við því að það verði mikið um flautublástur og „Hæ Samfylking“ þar á bæ.
Þetta mál er ekki það eina sem flokkarnir eru ósammála um, má þar nefna afstöðu til álvers í Helguvík. Þeir eru þó sammála um að skatta verði að hækka og að óráð sé að koma bönkum úr ríkiseigu. Því var oft kastað fram af vinstri flokkunum að framsóknarflokkurinn hefði hlekkjað sig eins og fylgidýr við Sjálfstæðisflokkinn, jafnvel þótt flokkarnir hafi fengið endurnýjað umboð aftur og aftur. En nú fáum við loks að sjá hvort Vinstri grænir séu aðeins á orði en ekki á borði. Annað hvor flokkurinn verður að gefa undan ætli þeir að halda áfram ríkisstjórnarsamstarfi eftir kosningar, annars sannast það að Sjálfstæðisflokkurinn er eini flokkurinn er einn um það að gangi hreint til verks!
Benedikt Hallgrímssonformaður Týs