Greinar
20. apríl 2009 › 20:53

Hugsum okkur vel um

Jón Ingi StefánssonNú þegar vinstrisveifla skekur þjóðfélagið og fjölmiðlar svokallaðir keppast við að ata Sjálfstæðisflokkinn auri er mikilvægt að staldra við og íhuga stöðuna. Viljum við virkilega kjósa yfir okkur vinstristjórn? Viljum við virkilega áframhaldandi gjaldeyrishöft og skattahækkanir? Viljum við áframhaldandi virðingarleysi gagnvart stjórnarskránni?

Það er þetta sem núverandi minnihlutastjórn hefur boðið uppá undanfarnar vikur og mánuði. Það gefur alls ekki fögur fyrirheit um framtíðina. Stjórnin sem mynduð var eftir búsáhaldabyltinguna svokölluðu utan um efnahagsaðgerðir til bjargar heimilum og fyrirtækjum nýtti drjúgan part tíma síns í að bola fyrrum andstæðingi úr Seðlabankanum. Með vafasamri lagasetningu í besta falli. Restin af tímanum fór síðan í að banna nektardansstaði, gera kaup á vændi ólögleg, og að keyra í gegn illa ígrundaðar og hroðvirknislega unnar breytingar á stjórnarskránni rétt fyrir kosningar. Eins og allir hljóta að sjá koma þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar fólki í skuldaerfiðleikum að góðum notum!

Nú þegar ný forysta Sjálfstæðisflokksins hefur verið kosin og fortíðin og þau mistök sem henni fylgdu hafa verið gerð upp er ljóst hver besti kosturinn er í komandi kosningum. Sjálfstæðisflokkurinn er sá flokkur sem best er til þess fallinn að leiða uppbyggingu landsins eftir kosningar. Það verður ekki gert með skattahækkunum eða launalækkunum, gjaldeyrishöftum eða fjölgun ríkisfyrirtækja og allra síst með því að gera löglega atvinnuvegi að glæpastarfsemi. Það verður gert með því að treysta á einstaklingsframtakið og búa þannig um hnútana að eftirsóknarvert sé að hefja atvinnurekstur. Það boðar Sjálfstæðisflokkurinn.

Nú eru einungis örfáir dagar til kosninga og eru þetta líklega þýðingarmestu kosningar sem ungir íslendingar hafa tekið þátt í og virkilega mikilvægt að kjósa skynsamlega og yfirvegað en ekki í ótta og óðagoti. Ætlum við okkur að kjósa til vinstri þar sem hlutir eins og launalækkanir, skattahækkanir og fjölgun skatta verða hafðir að leiðarljósi? Eða ætlum við að kjósa sjálfstæðisstefnuna og gefa þar með einstaklingum og atvinnulífinu færi á að blómstra á eigin forsendum?

Ég veit hvað ég vel.

Jón Ingi Stefánsson
Deila á Facebook