Öflugt atvinnulíf forsenda hagsældar
Mikið starf er framundan við endurreisn íslenska efnahagslífsins til að skapa framtíðarskilyrði fyrir komandi kynslóðir hér á landi. Innan Sjálfstæðisflokksins hefur öflugt starf síðastliðna mánuði hjá nokkur hundruð flokksmönnum, konum og körlum, skilað sér í faglegum og vel ígrunduðum ályktunum á síðasta landsfundi . Landsfundurinn er sá fjölmennasti sem haldinn er fyrir þessar kosningar ef litið er til þeirra flokka sem eru í framboði. Það sem er aðdáunarvert er hversu auðmjúk forysta flokksins hefur verið og tilbúin að horfast í augu við fortíðina til að byggja upp öflugt samfélag. Forystan hefur verið endurnýjuð og ég er sannfærð um að sú stefna sem flokkurinn hefur ætíð aðhyllst mun koma okkur í gegnum þá erfiðleika sem steðja að okkar samfélagi. Án þess að fara nánar út í það umrótartímabil sem verið hefur hér á landi líkt og annarsstaðar í heiminum þá tel ég mikilvægara að stefna fram á við og huga að því hvert við viljum stefna og hvernig við viljum ná aukinni hagsæld.
Atvinnulíf landsins hefur blómstað síðastliðin ár ekki síst þar sem erlent lánsfé streymdi til landsins og því bitu háir stýrivextir ekki á þenslu og verðbólga jókst hröðum skrefum. Nú þegar skarpur viðsnúningur er hafinn er nauðsynlegt að staldra við og huga að því hvernig við getum stutt við fyrirtæki landsins sem eru ofurskuldsett og flest með erlent lán þó svo tekjur þeirra séu í íslenskum krónum. Í fyrsta lagi glíma þessi félög við mikla óvissu vegna ójafnvægis í eigna og skuldastöðu þar sem skuldir þeirra taka mið af gengisbreytingum sem hafa aftur engin áhrif á framleiðslu, eftirspurn eða eigið fé þessara félaga. Þau félög sem eru með innlend lán eða þurfa á fjármögnun að halda glíma við gífurlegt vandamál þar sem rekstrarskilyrði hérlendis vegna hárra vaxta eru ómöguleg. Til að glæða atvinnulífið lífi að nýju er því nauðsynlegt að lækka vexti . Yfir gjaldmiðlinum okkar er hengja sem mun renna niður með þunga að lokum hvort sem vextirnir eru 17% eða 7%.Staðreyndin er sú að erlendum krónubréfaeigendum er algjörlega sama hvað vaxtastigið er á landinu þeir vilja einfaldlega losna við sínar krónur. Því er nauðsynlegt að leysa vandamál vegna krónubréfa með öðrum hætti en að drepa atvinnulífið niður. Nú þegar yfir átján þúsund manns eru atvinnulausir og ennþá sjáum við ekki fyrir endann á uppsagnarhrinunum vegna samdráttar í rekstri eða gjaldþrota er nauðsynlegt að beita þeim hagstjórnartækjum sem við búum yfir, eins og stýrivöxtum, til að skapa atvinnu og forða félögum frá gjaldþroti. Hagsmunir heimila eru nátengdir hagsmunum atvinnulífsins og því er þetta mál það brýnasta sem við stöndum frammi fyrir til að tryggja stöðugleika heimilanna.
Þegar krónunni er snúið við má horfa til þeirra sem eiga fjármagn þá eru háir stýrivexti mikill hvati fyrir fjármagnseigendur sem fá yfir 15% vexti á sín innlán, tryggð af ríkinu. Fjármagnseigendur, hafa engan hvata til þess að nýta fjármagnið til framkvæmda. Það er til fjármagn hér á landi sem hægt væri að nýta til atvinnuskapandi og hagkvæmra framkvæmda í þeirri uppbyggingu sem blasir við, einnig til nýsköpunar og sem eigið fé í félögum sem þarfnast fjármagns. Ef ekki væru háir vextir sem gerir fjármagnseigendur ónæma fyrir þátttöku í uppbyggingarstarfinu væru aðstæður betri hjá fyrirtækjum landsins.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur byggt upp gott bú á síðastliðnum árum. Allar skuldir íslenska ríkisins voru greiddar niður og útgjöld margfölduð á sviðum mennta-, heilbrigðis-, velferðar- og samgöngumála í stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins. Á þeim tíma fengu þeir þó skammir í hattinn frá stjórnarandstöðu. Þegar sagan verður skoðuð í heild sinni verður Sjálfsstæðisflokkurinn kenndur fyrir þau baráttumál sem skipta fjölskyldur landsins mestu máli eða velferð og öflugt atvinnulíf.
Til að tryggja farsælar lausnir og framsýna hugsun vona ég að kjósendur muni eftir þeim góðu verkum sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur síðastliðin ár staðið fyrir.Virði jafnfram þá miklu vinnu sem flokkurinn hefur farið í á síðastliðnum mánuðum til að fara yfir atburði síðasta árs í fjármálalífi heimsins og þátt flokksins í því ásandi sem við stöndum frammi fyrir. Til að tryggja atvinnulíf og efnahagsástand sem verður ekki kennt við upptöku eigna, hækkun skatta og fá atvinnutækifæri þá er eina vitið að kjósa Sjálfstæðisflokkinn.
Birtist í Týsdegi 17. apríl 2009
Unnur B. Johnsen
Höfundur Skipar 12. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi