Skammarleg stefna Borgarahreyfingarinnar
Miðað við skoðanakannanir síðustu daga virðist það ætla að gerast að Borgarahreyfingin nái frambjóðendum sínum inn á þing. Vegna þessara tíðinda ákvað ég að kynna mér málið og athuga hvað það væri við Borgarahreyfinguna sem er að ná til fólks.
Eftir að hafa lesið stefnuskrá þeirra hef ég komist að því að stefnumál þeirra eru annaðhvort klisjukenndar almennar yfirlýsingar sem hafa enga þýðingu í raun, eða stefnuyfirlýsingar um hluti sem eru ógerningar eða erfitt að framkvæma og restin er eitthvað sem allir geta verið sammála um og enginn flokkur setur sig upp á móti.
Mér finnst reyndar ótrúlegt hvað margt á stefnuskrá þeirra er skammarlega vanhugsað. Ég ætla að taka tvö dæmi:
Borgarahreyfingin leggur til að 7% þjóðarinnar geti með bindandi hætti krafist þingrofs. Hvað þýðir það? Ef þessu yrði fylgt eftir gæti Alþingi eða ríkisstjórn líklega aldrei starfað í friði þar sem svo ótrúlega lítill hluti þjóðarinnar gæti rofið það. Flestir stjórnmálaflokkar eru með yfir 7% fylgi sem þýðir að þeir þyrftu ekki annað en að biðja hluta af stuðningsmönnum sínum að krefjast þingrofs til þess að það næði fram að ganga.
Borgarahreyfingin leggur einnig til að það verði sett lög sem leyfa ógildingu allra fjármálagerninga undanfarinna tveggja ára. Frábært! Útrásarvíkingarnir geta bara sótt peningana sína í þrotabú bankanna. Ætli ég geti sótt Avensisinn sem ég seldi fyrir einu og hálfu ári?
Það sér hver maður að þetta gengur alls ekki upp. Ríkið yrði skaðabótaskylt upp á himinháar upphæðir sem almenningur myndi óhjákvæmilega þurfa að borga brúsann.
Ég er algjörlega kominn með nóg af óábyrgum yfirlýsingum framboða sem virðast ekki vera gerðar í neinum öðrum tilgangi en til þess veiða atkvæði hjá fólki sem á erfitt með að sjá í gegnum vitleysuna. - Skamm Borgarahreyfing!
Það ætti enginn að kjósa flokka sem lýsa yfir jafn fáránlegum aðgerðum eins og þessar hér að ofan. Grasið er ekki grænna hjá fólki sem spilar blekkingarleik.
Sjálfstæðisflokkurinn er eini flokkurinn sem er með raunhæfar lausnir í atvinnumálum. Þær felast einfaldlega í því að nægt súrefni þarf að komast til fyrirtækjanna svo þau geti starfað. Atvinnulífið verður ekki endurreist með því að gera fólki og fyrirtækjum erfiðara fyrir með auknum byrgðum eða jafn fáránlegum aðgerðum eins og Borgarahreyfingin leggur til.
Treystum Sjálfstæðisflokknum til endurreisnar!
Rafn Steingrímssongjaldkeri Týs