Veröld vinstri manna sýnir sig, sú mér spáir hörðu
Veröld fláa sýnir sig.
Sú mér spáir hörðu.
Flestöll stráin stinga mig
stór og smá á jörðu.
Þjóðvísa
Á þriðjudaginn eftir páska sýndu Vinstri-Grænir sína raunverulegu stefnu í því hvernig fylla á upp í fjárlagagatið á þessu ári, þegar Katrín Jakobsdóttir varaformaður VG jánkaði því að þau ætli að lækka laun og hækka skatta. Ef það er sú skjaldborg sem slá á um heimilin sem minnihlutastjórnin hefur boðað frá því í febrúar finnst mér frekar réttnefni að slegin sé eldborg um heimilin, því með þessum aðgerðum verður einungis kynnt undir þeim eldi sem kraumar undir, en hann ekki slökktur. Hækkun tekjuskatts leiðir ekki af sér hærri tekjur fyrir ríkissjóð af þeirri einföldu ástæðu að um 70% tekna ríkissjóðs kemur í gegnum óbeina skatta, þ.e. virðisaukaskatta og tolla einna helst. Með því að hækka tekjuskatt eru ráðstöfunartekjur heimilanna skertar og neyslan minnkar. Með minnkandi neyslu tapast tekjur fyrir ríkissjóð. Að auki, sem verra er, minnka tekjur þeirra fyrirtækja sem selja neysluvörur, en þau fyrirtæki eru stór hluti af atvinnnulífinu hér á landi. Tekjuskattshækkun mundi því minnka tekjur ríkissjóðs, gera fyrirtækjum erfiðara fyrir og því á sama tíma gera heimilunum gríðarlega erfitt fyrir og er þar nógu erfitt fyrir.
Kosningarnar á laugardaginn snúast í fyrsta sinn í langan tíma um þann gríðarlega mun sem felst í hægri og vinstri. Línurnar hafa aldrei verið skýrari. Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á að koma atvinnulífinu af stað aftur og er forgangsverkefni að lækka stýrivexti og koma bankakerfinu í gang, sem er lamað í dag undir forystu núverandi fjármálaráðherra. Að auki að létta undir með heimilunum með því að lækka greiðslubyrði af lánum um 50% í þrjú ár og lengja lánið í staðinn í hinn endann.
Þau strá sem vinstri menn hafa sáð í jörðu eru öll visin og stinga illa. Þeir hafa þjóðnýtt fyrirtæki og hyggjast halda því áfram með stofnun eignaumsýslufélags og síðan boða þeir hækkun skatta og lækkun launa. Ísland er enn land tækifæranna þrátt fyrir að í harðbakkann hafi slegið og þýðir ekki að rífa sig upp úr volæðinu með því að skera á tækifærin. Byggja þarf upp fjölbreytt og lífvænlegt atvinnulíf en sú veröld vinstri manna, sem loks er farin að sýna sitt rétta andlit, spáir hörðu!
Víðir Smári Petersenstjórnarmaður Týs