Greinar
27. apríl 2009 › 13:00

Samfó og VG: algjör brandari

Rafn SteingrímssonNú liggja úrslit Alþingiskosninga fyrir og þeirri háværu kröfu um endurnýjun umboðs Alþingismanna hefur verið fullnægt. Ákveðið uppgjör hefur átt sér stað. Fortíðin var gerð upp og Sjálfstæðisflokknum refsað, enda tapaði flokkurinn greinilega þessum kosningum.

Sú staðreynd að Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei í sögu flokksins fengið jafn lítið fylgi í Alþingiskosningum er greinileg krafa landsmanna að flokkurinn komi ekki að stjórn landsmála næstu misseri. Nú bíður okkar sjálfstæðismanna það verkefni að endurvekja traust kjósenda á Sjálfstæðisflokknum og sjálfstæðisstefnunni sem hefur verið þjóðinni svo farsæl í gegnum áratugina.

Ég trúi því reyndar að margir kjósendur munu sjá eftir því að hafa kennt Sjálfstæðisflokknum algjörlega um efnahagshrunið og kosið samkvæmt því innan tíðar, þar sem mögulegar ríkisstjórnir eftir kosningarnar eru ekki upp á marga fiska.

Í fyrsta skipti geta tveir vinstri flokkar myndað meirihlutastjórn. Sú draumastaða vinstri manna verður að hálfgerði martröð þegar nánar er að gáð, þar sem málefnalegur ágreiningur flokkanna er gríðarlegur.

Samfylkingin hefur lagt á það ótrúlega áherslu að ganga eigi til aðildarviðræðna við ESB. Þetta var stærsta kosningamál Samfylkingarinnar. VG vill hins vegar ekkert með ESB hafa!

Samfylkingin hefur þó eitt vopn í pokahorninu. Þeir geta mögulega myndað ríkisstjórn með Framsóknarflokknum og Borgarahreyfingunni. Þegar nánar er að gáð er þetta vopn bitlaust sverð, enda geta þessir flokkar varla starfað saman. Borgarahreyfingin er nýr flokkur inni á Alþingi og fáir hafa fullsteypta hugmynd um fyrir hvað hann stendur. Hann er þverpólitískur, og erfitt verður fyrir Samfylkinguna að treysta hreyfingunni.

Ný ríkisstjórn getur ekki sett málefnin á ís eins og hún gerði síðastliðinn febrúar, enda er um framtíðar ríkisstjórnarsamstarf að ræða og því verða Evrópumálin Samfylkingunni óneitanlega erfitt mál. Ef þeir kjósa að leggja það til hliðar eftir að hafa lagt svo mikla áherslu á það, þá er hætta á því að Samfylkingin klofni innbyrðis.

Ef Samfylking hins vegar neitar að gefa afslátt af þessu málefni þá eiga þeir í hættu á því að mála sig út í horn í ríkisstjórnarviðræðum.

Ólíklegt er að ríkisstjórn VG og Samfylkingarinnar muni starfa lengi. Jóhanna Sigurðardóttir er ekki beint þekkt sem sveigjanlegur stjórnmálamaður. Reynslan sýnir að hún stefnir sína leið án þess að taka tillit til þess hvert þungi Samfylkingarinnar eða ríkisstjórnarinnar stefnir. Þetta mun verða henni mjög erfitt.

Íslendingar hafa kosið yfir sig óhæfa og algjörlega ósamstíga ríkisstjórn með þverhausinn Jóhönnu sem stýrimann. Ætli fólk muni sjá eftir því að hafa látið atkvæðið sitt snúast um misréttlætanlega reiði á ákveðnum stjórnmálaöflum?

Sjálfstæðisflokkurinn þarf að byggja sig verulega upp á meðan hann stendur á hliðarlínunni, þar sem hann þarf að vera tilbúinn að koma sterkur til leiks eftir stjórnarsetu vinstri stjórnarinnar.

Rafn Steingrímsson
gjaldkeri Týs
Deila á Facebook