Ótrúlega smekklaust!
Þá er ný ríkisstjórn tekin til starfa og fyrsti ríkisstjórnarfundurinn var haldinn í dag. Ég horfði á myndfrétt á vef Morgunblaðsins áðan og mér fannst eitthvað ótrúlega smekklaust við hvernig ný ríkisstjórn ætlar að taka til starfa. Jóhanna Sigurðardóttir tjáði fréttamanni að ríkisstjórnin myndi tilkynna skattahækkanir eftir helgi. Nú þurfum við skattgreiðendur að taka á okkur auknar byrgðar til þess að brúa fjárlagahalla ríkissjóðs.
Það sem var ótrúlega smekklaust við þetta var að viðtalið var tekið við Jóhönnu á Reykjavíkurflugvelli þar sem hún var að fara með ríkisstjórnina í skemmtiferð til Akureyrar, og þar átti fyrsti ríkisstjórnarfundurinn að fara fram.
Ég get skilið að ráðamenn fari í ferðir á kostnað skattgreiðenda í erindagjörðum ríkisins. Það er hins vegar enginn skortur á húsnæði til fundarhalda í Reykjavík og því á ríkisstjórnin ekkert erindi til Akureyrar. Það er fínt og gott hús við Lækjargötuna sem er þar aðeins í þeim tilgangi svo ríkisstjórnin geti notað það til fundarhalda.
Ríkisstjórnin kynnti það í gær að hún ætlaði að draga úr ferðakostnaði ráðamanna. Daginn eftir eyðir hún líklega 400.000 kr. í algjörlega óþarfa ferð!
Þrátt fyrir að kostnaðurinn við þessa ferð sé kannski ekki mikill miðað við veltu ríkissjóðs, þá er þetta bara virkilega smekklaust af Jóhönnu Sigurðardóttir og föruneyti hennar. Forsætisráðherra getur bara ekki komið fram í sjónvarpi og sagt við fólkið að núna þurfi að hækka skatta á það vegna slæmrar stöðu ríkissjóðs, en skattahækkunin verði kynnt eftir að ríkisstjórnin er búin að eyða hundruðum þúsundum króna af skattfé í algjörlega óþarfa ferð.
Rafn Steingrímssongjaldkeri Týs