Greinar
28. júní 2009 › 19:18

Óhæf Ríkisstjórn

Gunnlaugur Snær ÓlafssonFyrr á árinu heyrði öll þjóðin ýmisleg slagorð mótmælenda, eitt þeirra var vanhæf ríkisstjórn. Barið var á pottalok og alskonar búsáhöld, enda kalla fjölmiðlar þetta búsáhaldarbyltinguna. Furðulegt í raun að kalla þetta byltingu þar sem tveir leiðtogar stjórnarflokkana hafa setið á Alþingi samtals í nærri sex áratugi og bæði hafa verið í ríkisstjórnum undir forystu Sjálfstæðisflokks, og þetta kalla menn endurnýjun.

Þrátt fyrir að vera gamlir jálkar telja leiðtogar Vinstri Græna og Samspillingarinnar að þeir hafi ný úrræði fyrir vandamál Íslands. Það kom mér á óvart að lesa á vefsíðu Manitoba Chamber of Commerce að Gissur Pétursson, forstöðumaður Vinnumálastofnunar, var að skrifa undir samning við vinnumála og innflytjenda ráðherra Kanada. Samningurinn sem skrifaður var undir var til þess gerður að einfalda Íslendingum að fá vinnu í Kanada og þá sérstaklega í Manitoba, sem helst er þekkt sem heimili vestur-Íslendinga.

Augljóslega er það stefna ríkisstjórnarinnar að finna ekki úrræði til þess að vinna bug á atvinnuleysi á Íslandi heldur að senda hina atvinnulausu vestur um haf. Þetta er svo sem ekkert ný hugmynd, enda gerðu flestar Evrópsku þjóðir hið sama á 19. öld. En þetta sýnir okkur bara það að ríkisstjórnin virðist algjörlega óhæf til þess að tryggja atvinnu fólks.

Enn betra dæmi um óhæfni ríkisstjórnarinnar kom í ljós þegar forsætisráðherra loksins viðurkenndi að umsókn að Evrópusambandinu tæki að minnsta kosti 3 ár. Mig minnir að Samspillingin hafi haldið því fram margoft að þetta mundi einungis 6-12 mánuði. Sem sagt hefur ríkisstjórnin ákveðið að gera ekkert í þrjú ár þangað til að gjöf drottins til manna, ESB, kemur og lagar ÖLL vandamál okkar Íslendinga. Hér kemur auðvitað Evru-málið til umræðu, því ef það tekur lágmark 3 ár að fá evru; hvað ætla menn að gera á meðan?

Ríkisstjórnin hefur þó ákveðið að skera niður í opinberum útgjöldumog hefur það átak þegar byrjað. Vissulega er það mikilvægt að fjarlægja halla á ríkissjóði, en ríkisstjórn Samspillingar og Vinstri Græna hefur byrjað á því að skera niður hjá þeim stofnunum sem veita beina þjónustu við íbúa þessara ágætu þjóðar. Þar á meðal eru sjúkrahús, fangelsi, lögregla, skólar og fleira, hinsvegar hefur ekkert verið skorið niður í ráðuneytunum sjálfum eða í öllum þeim ráðum og nefndum sem starfa á vegum ríkisins þar sem allir eru á launum. Ég met það svo að sjálfsagt er að byrja niðurskurð þar sem það hefur sem minnstu áhrifin á þá sem í landinu búa, en ríkisstjórnin er greinilega ekki sammála því. Þó gæti það að sjálfsögðu verið að ekki má skera niður í ráðuneytunum þar sem nauðsynlegt er að hafa heilan herskara af „býrokrötum“ til þess að fara í samningsgerð við Evrópusambandið.

Til þess að gera málin betri gerir ríkisstjórnin samning við Bretland um IceSave sem er fyrir neðan allar hellur, að detta sér í hug að setja eignir Íslenska ríkisins sem veð einfaldlega ógeðfellt. Ég vil ekki ímynda mér hvaða áhrif það mundi hafa ef Breska ríkið tæki yfir Landsvirkjun eða yfir kvóta einhverra fiskitegunda. Annað hvort hafa meðlimir ríkisstjórnarinnar verið svo vitlausir að þeir hafa ekki vitað eða skilið um hvað væri verið að tala eða þá er þeim alveg sama því þeir vita að við missum hvort sem er kvótan „þegar“ við göngum í Evrópusambandið.

Núverandi ríkisstjórn Íslands er greinilega að öllu leiti óhæf til starfa, og vonandi fer tími Jóhönnu að ljúka.

Gunnlaugur Snær Ólafsson
Deila á Facebook