Fréttir
20. ágúst 2009 › 16:57

Sambandsþing SUS

tyr_logoSambandsþing SUS verður haldið dagana 25. - 27. september á Ísafirði. Týsarar munu að sjálfsögðu ekki láta sig vanta á þennan merka viðburð. Stjórn Týs mun á næstu dögum kjósa fulltrúa til setu á þinginu og geta félagsmenn gefið kost á sér.

Stjórn Týs mun á næstu dögum reyna að panta gistingu og far fyrir félagsmenn og því væri mjög gott ef þeir sem hafa áhuga á því að ferðast til Ísafjarðar og nýta sér gistingu sem Týr mun skipuleggja myndu klikka við boxið í skráningunni.

Þeir félagsmenn sem óska eftir því að vera fulltrúar Týs á sambandsþingi SUS geta skráð sig hér. Umsóknir verða að berast fyrir 3. september svo þær verði teknar til greina.

Hefur þú áhuga á því að vera fulltrúi Týs á SUS-þinginu?

Deila á Facebook