Fréttir
19. október 2009 › 15:31

Pókermót Týs

royal-flushPókermót Týs verður haldið laugardaginn 24. október.

Spilað verður eftir Texas hold‘em fyrirkomulaginu. Stefnt er að því að 48 spilarar taki þátt svo potturinn verði um 50.000 krónur!

Byrjað verður að spila á slaginu 20:00 og er ráðgert að ljúka mótinu um 23:00. Fólk er því beðið um að mæta tímanlega.

1.000 kr. “buy-in” og mun sigurvegarinn taka pottinn, en einnig verða veitt verðlaun fyrir 2. og 3. sætið.

Léttar veitingar verða á boðstólum fyrir þyrsta spilara.

Fólk er hvatt til að skrá sig “attending” á Facebook hérna og taka þátt í snörpum póker.

Deila á Facebook