Greinar
23. október 2009 › 15:04

Ætlið þið að eyðileggja Ísland?

egill23123jeÉg hreinlega trúi því ekki hvað er að eiga sér stað í íslensku samfélagi í dag. Ríkisstjórn þessa lands sem mynduð er af þeim flokkum sem fengu meirihluta atkvæða í síðustu kosningum ætlar að eyðileggja land okkar og stolt. Vinstri grænir voru svaka hetjur fyrir kosningarnar síðastliðið vor. Þeir vildu ekki Icesave, þeir vildu ekki ESB og þeir ætluðu sko að hjálpa heimilunum í landinu. Þeir fengu líka atkvæði út á það!

Nú er ég ekki stuðningsmaður Vinstri grænna. Þó var ég sammála þeim í þessum atriðum. Það þarf að aðstoða heimilin í landinu, það þarf að skera úr um Icesave fyrir dómstólum og það átti alls ekki sækja um aðild að ESB. Miðað við þessi stefnumál þá þótti mér það ekkert vera versta tilhugsun í heimi að Vinstri grænir færu í ríkisstjórn og myndu reyna að halda aftur af Samfylkingunni.

En hvað gerðist í raun og veru? Vinstri grænum þykja sínir ráðherrastólar svo óendanlega þægilegir að þeir gera allt til þess að fá að sitja aðeins lengur í þeim. Þeir vilja ekki sjá Evrópusambandið en samt ákváðu þeir að kjósa með aðildarumsókn á Alþingi því ekki máttu þeir styggja samstarfsflokk sinn. Þetta er ótrúlegt, en satt.
Þeir vildu ekki heldur sjá Icesave og gekk Steingrímur manna lengst í gagnrýni sinni þegar hann var í stjórnarandstöðu á síðasta ári. Hann sagðist hafna öllum þeim viðræðum sem hefðu átt sér stað vegna Icesave málsins sem þá var nýfarið af stað. Nú er það staðreynd að Samfylkingin vill ólm komast inn í ESB og svo virðist vera sem hún sé tilbúin í að gera hvað sem er til þess. Samfylkingin telur sér trú um það að draumur hennar um inngöngu sé úti nái ríkisstjórnin ekki að semja við Breta og Hollendinga þannig að þeir fari sáttir frá samningaborðinu. Samfylkinguna varðar ekkert um stöðu Íslands. Þarna nær Samfylkingin einhvern veginn að snúa Vinstri græna niður í annað sinn og virðist vera búin fá þá til að samþykkja Icesave líka. Þetta er ótrúlegt, en satt.

Þeim Steingrími J. og félögum í forystusveit Vinstri grænna hlýtur að líða alveg ömurlega. Þeir eru búnir að svíkja sín stærstu kosningaloforð. Það er alveg magnað hvernig Samfylkingin hefur gjörsamlega náð kverkataki á þeim. Ég skil þetta bara alls ekki.

Þeir sem halda að Ísland verði betur sett með skuldaklafa vegna Icesave á bakinu eru á villigötum. Stuðningsmenn þess að Ísland taki á sig þessar skuldir nefna að Bretar muni beita okkur kúgunum samþykkjum við þetta ekki. Frekar vil ég vera kúgaður af Bretum í einhvern tíma heldur en að stuðla að því að Ísland verði á ný eitt af fátækustu ríkjum Evrópu!

Ég segi nei við Icesave!

Greinin birtist einnig í Morgunblaðinu föstudaginn 23. október.

Egill Örn Gunnarsson
varaformaður Týs
Deila á Facebook