Fréttir
14. janúar 2010 › 00:03

Fjölmennasti aðalfundur í sögu Týs: Benedikt Hallgrímsson heldur velli

tyr_logoFjölmennasti aðalfundur í sögu Týs, félags ungra sjálfstæðismanna í Kópavogi var haldinn í kvöld. Vissulega er það ánægjulegt og viðurkenning á störf félagsins undanfarið hve margir félagsmenn mæta á aðalfund. Að undanskildum hefðbundnum aðalfundarstörfum voru kosningar stjórnar hæst á baugi. Atkvæði voru 222 og fékk framboð Benedikts Hallgrímssonar 114 atkvæði og framboð Péturs Magnúsar Birgissonar 107. Einn seðill var auður.

Í stjórn félagsins sitja nú; Benedikt Hallgrímsson formaður, Egill Örn Gunnarsson, Guðmundur Heiðar Helgason, Guðrún Anna Atladóttir, Gunnsteinn Finnsson, Jóhann Valur Sævarsson, Rafn Steingrímsson, Sigrún Kristjana Hjartardóttir og Víðir Smári Petersen. Í varastjórn voru kjörnir Ingþór Hjálmar Hjálmarsson, Ingvi Þór Sæmundsson, Kristján Ingi Jóhannesson og Unnar Freyr Jónsson.

Aðalfundur 2010

Aðalfundur 2010

Benedikt Hallgrímsson flytur skýrslu stjórnar

Benedikt Hallgrímsson flytur skýrslu stjórnar

Guðmundur Heiðar Helgason

Guðmundur Heiðar Helgason

Frá Aðalfundi 2010

Frá Aðalfundi 2010

Deila á Facebook