Grípa þarf til raunhæfra aðgerða
Það er kaldur vetur sem tekur á móti landsmönnum í desember, burtséð frá því að úti er Síberíufrost. Mörgum hefur eflaust brugðið í brún þegar launaseðill barst inn um lúguna, og nýr liður hafði bæst við á seðlinum. Hátekjuskattur. Hjá mörgum sem berjast í bökkum hver mánaðarmót við að ná endum saman, borga af himinháum lánum og sykurlausu sódarvatni sem þó er flokkað undir „sykurskatt“. Hjá fólki sem aldrei hefur talist hátekjufólk eða lifað fram úr hófi. Og að auki hafði hin reglulega skattpína hækkað upp í 37%. Þetta hátekjufólk getur þó huggað sig við það að peningurinn mun fara í bráðnauðsynlegar aðgerðir til bjargar efnahagnum, til dæmis bygging Tónlistarhúss við höfnina og greiðslu Icesave ánauðarinnar. Eða hitt þó heldur. Og afleiðingar skattahækkana vinstri stjórnarinnar eru strax farnar að láta á sér kræla, með hópuppsögnum fyrirtækja sem sjá sér ekki annað fært en að skera niður sökum bugandi gjaldheimtu ríkisins.
Á tímum sem þessum, þegar vinstri menn kasta á glæ öllum raunhæfum hugmyndum um niðurskurð og telja töfralausnir fylgja í aukinni skattpíningu almennings, er nauðsynlegt að þar sem skynsemismenn, sem virðast í flestum tilfellum vera sjálfstæðismenn, sitja við sið sveitarstjórnarvöld, leggi sitt af mörkunum til að minnka álögur á íbúa sína. Það er ekki flokknum sæmandi að sitja í stjórnarandstöðu og leggja þar fram niðurskurðartillögur, sem á sumum sviðum geta verið erfiðar en bráðnauðsynlegar, en grípa ekki til alvöru niðurskurðar í þeim sveitarfélögum þar sem þeir eru í meirihluta. Í Reykjavík hefur verið gripið til niðurskurðar, og öllum hugmyndum vinstri manna um að hækka útsvarið í hámark hefur verið fleygt af borðinu. Það er meirihlutanum í Reykjavík til sóma, og verður vonandi til þess að Reykjavíkurbúar átti sig á að með vinstri menn við völd verða álögur í hámarki. Í Kópavogi hefur byggingu óperuhúss verið frestað. Best hefði auðvitað verið að slá hugmyndina af borðinu, enda með öllu ósamrýmanleg hlutverki fyrirmyndarsveitarfélags, en frestunin er hinsvegar gott skref. Næsta skref bæjarstjórnar ætti að vera að leita leiða til að lækka útsvar. Bæjarbúar greiða núna hámarksútsvar, 13,28%. Setjast þarf niður og fara yfir rekstur bæjarins, og skera niður óþarfa fitu. Vissulega geri ég mér grein fyrir erfiðri stöðu, flestöll sveitarfélög berjast í bökkum þessa daga. En ég neita að trúa því að ekki sé hægt að fara yfir rekstur sveitarfélagsins og finna þá liði sem var með einhverju móti hægt að réttlæta í góðærinu, en geta vikið í hagræðingarskyni. Auk þess er ég fullviss að bæjarbúar myndu taka slíkri aðgerð, sem yrði bein búbót til þeirra, með fagnandi hendi.
Sveitarstjórnarkosningar nálgast óðfluga, og er nauðsynlegt að flokkurinn fái góða kosningu til þess að halda sveitarfélaginu á því góða róli sem það hefur verið með Sjálfstæðisflokkinn í broddi fylkingar. En til þess að ná eyrum kjósenda og íbúa sveitarfélagsins verður að grípa til aðgerða í þeirra þágu. Lækkun útsvars er raunhæf aðgerð sem grípa þarf til sem fyrst!
Greinin birtist áður í Vogum
Benedikt Hallgrímssonformaður Týs