Ályktanir
21. janúar 2010 › 18:26

Ályktun Týs um fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar

tyr_logoStjórn Týs, f.u.s. í Kópavogi, fagnar þeirri samstöðu sem bæjarstjórn Kópavogs náði við samþykkt fjárhagsáætlunar fyrir árið 2010. Hins vegar er það miður hversu skammt er gengið í að skera niður og lækka álögur á íbúa bæjarins. Sveitarfélög verða að mæta erfiðu rekstrarumhverfi með niðurskurði á öllum sviðum þó ávallt verði að passa að ganga ekki nærri grunnþjónustu þeirra. Til að mynda verður að stíga óþægileg skref líkt og að lækka launakostnað og auka hagræðingu, t.d. með auknum einkarekstri.

Á meðan heimili og fyrirtæki í landinu þurfa að skera niður útgjaldaliði og þola auknar álögur af hálfu ríkisstjórnarinnar verða sveitarfélög að koma til móts við íbúa sína og lækka álögur. Það er ekki tækt að Sjálfstæðisflokkurinn standi fyrir því, í þeim sveitarfélögum þar sem hann situr í meirihluta, að hámarksútsvar sé innheimt af bæjarbúum. Bæjarstjórn Kópavogs ætti að taka sveitarfélög á borð við Seltjarnarnes og Garðabæ sér til fyrirmyndar, en þar hefur hækkun útsvars ekki verið beitt til að mæta erfiðu rekstrarumhverfi.

Með því að lækka álögur á einstaklinga og fyrirtæki verður Kópavogsbær samkeppnishæfara sveitarfélag. Stjórn Týs hvetur bæjarstjórn Kópavogs til að endurskoða fjárhagsáætlun bæjarins í lok mars, líkt og gert er ráð fyrir í bókun bæjarstjórnar, með aukinn niðurskurð og lækkun álagna að leiðarljósi.

Deila á Facebook