719
Greinar
16. febrúar 2010 › 11:53

Af hverju ætti ungt fólk að kjósa XD?

egill23123jeMikið af ungu fólki í dag veit ekki hvert það á að stefna að loknu námi. Þeir sem hafa stefnu eru oftar en ekki þeir sem tala um að flytjast af landi brott. Það er sorgleg staðreynd fyrir Ísland. Ég væri að ljúga ef ég myndi segja að ég hefði ekki leitt hugann að þeim möguleika. Í þessari grein ætla ég ekki að leggja öðru ungu fólki orð í munn heldur mun ég taka til eitt atriði sem mér finnst mikilvægt í því að byggja upp mína trú á framtíð landsins og vonandi annarra ungmenna.

Mikilvægt er að á Íslandi starfi öflug fyrirtæki sem afli okkur gjaldeyristekna. Þar má nefna álver, sjávarútvegsfyrirtæki, fyrirtæki í ferðaþjónustu og mörg fleiri. Það virðist vera að það séu ekki allir sem geri sér grein fyrir því að ef höfum ekkert til þess að selja öðrum þjóðum þá getum við ekkert flutt inn til landsins. Það lítur til dæmis út fyrir það að „hjónin“ Jóhanna og Steingrímur skilji ekki þetta grundvallaratriði í þjóðhagfræði.

Þau tvö virðast vera í einhverri keppni um það hvort geti eyðilagt meira fyrir áliðnaðinum og sjávarútveginum. Steingrímur gengur meira að segja svo langt að láta niðrandi orð falla um stjórnendur og eigendur þessara fyrirtækja á Alþingi. Mér finnst miklu frekar að Steingrímur ætti að þakka þessu góða fólki fyrir að leggja sitt af mörkum við það að koma með allan þennan gjaldeyri til landsins. Það er jú sjávarútvegurinn og áliðnaðurinn sem skilar langmestu til þjóðarbúsins. Ekki CCP, Marel eða Össur. Þessi þrjú fyrirtæki eru landinu hins vegar til sóma og frábær viðbót við flóruna en þau geta aldrei haldið okkur uppi eins og þær tvær grunnstoðir sem ég nefndi hér áðan.

Haustið 2008 sást það betur en nokkru sinni fyrr hversu mikilvægt er að hafa fyrirtæki í landinu sem eru að framleiða raunveruleg verðmæti en eru ekki byggð á sandi eins og bankarnir voru. Í þessu svokallaða góðæri var maður farinn að heyra besta fólk tala niður til sjávarútvegsins því hann var jú farinn að skila minna inn í ríkiskassann heldur en bankarnir. Þá komu fram ýmsar furðulegar hugmyndir eins og að það væri gæfulegt að ganga í Evrópusambandið. Fólk sem talar um Evrópusambandið sem lausn er á villigötum því þá tökum við stærstu grunnstoðina í burtu, sjávarútveginn.

Þetta er það sem Sjálfstæðisflokkurinn virðist skilja ólíkt þeim stjórnarflokkum sem nú eru við völd og því finnst mér að ungt fólk ætti að kjósa hann. Ef að við höfum öflug fyrirtæki í útflutningi þá er hægt að byggja mikið ofan á það. Þess vegna eigum við að bera virðingu fyrir þeim og efla þau ef við getum!

Greinin birtist áður í Týsdegi

Egill Örn Gunnarsson
Deila