Ungt fólk til áhrifa

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi fer fram 20. febrúar nk. Þar veljum við okkar fulltrúa fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Nauðsynlegt er að tryggja fjölbreytileika listans til að ná til sem flestra kjósenda. Í framboði nú eru 12 manns, sumir hoknir af reynslu og aðrir með ferskt blóð og nýjar hugmyndir. Ég tilheyri seinni hópnum, þó svo störf mín innan flokksins hafi verið fjölmörg í gegnum árin. Ég hef starfað með Tý, félagi ungra sjálfstæðismanna, og er í dag formaður félagsins. Auk þess hef ég starfað innan SUS og er varamaður í jafnréttisnefnd Kópavogs. Þar fyrir utan er ég á þriðja ári í lögfræði við HÍ.
Komandi kjörtímabil verður erfitt, og mun nýrri bæjarstjórn bíða verðugt verkefni. Ljóst er að bærinn þarf að kljást við aukinn tekjumissi jafnt sem íbúar hans, og stíga verður sársaukafull skref í niðurskurði á þjónustu og endurskipuleggja verður uppbyggingarmöguleika bæjarins. Hins vegar er nauðsynlegt að gleyma ekki því sem uppgangur liðinna ára hefur skilið eftir sig í sveitarfélaginu, og þeim miklu sóknarfærum sem til staðar eru. Við búum yfir frábærri íþróttaaðstöðu um allt sveitarfélagið, fjölbreyttri atvinnustarfsemi, rótgrónum fjölskylduhverfum sem og nýjum. Ungt fólk, sem annaðhvort er í námi eða er að klára nám er flest allt að stíga sín fyrstu spor sem sjálfstæðir og ábyrgir einstaklingar. Til þess að Kópavogur sé raunhæfur valkostur fyrir þennan hóp kjósenda verður að tryggja tiltölulega ódýrt þak undir höfuðið. Að mínu mati verður að opna fyrir tækifæri á leigumarkaði, sem er í dag stórt sóknarfæri á fasteignamarkaðnum. Einnig er nauðsynlegt að leita allra leiða til að lækka útsvarið, til að auðvelda fjölskyldum og öðrum sem kljást við bágan fjárhag í erfiðu árferði.
Ég bið um stuðning þinn í 5. sætið í komandi prófkjöri, vegna þess að ég tel mikilvægt að sá listi sem við teflum fram í vor nái til allra kjósenda. Oft vill gleymast að ungt fólk er stór hópur kjósenda. Ég býð fram krafta mína því ég tel mig geta höfðað til ungs fólks með þeim stefnumálum sem ég stend fyrir.
Benedikt Hallgrímssonformaður Týs