Greinar
23. febrúar 2010 › 14:46

Framtíð Kópavogs

Gunnsteinn FinnssonEftir nýafstaðið prófkjör þarf að huga að framhaldinu hjá Sjálfstæðisflokknum í Kópavogi. Vinna þarf að hefjast við mótun stefnuskrár flokksins. Þegar hugurinn er látinn reika, þá eru mörg atriði sem hugsa þarf um.

Eitt sem þarf að gerast strax er að skapa betra rekstrarumhverfi fyrir íbúana og fyrirtækin í sveitar-félaginu. Strax kemur í ljós að hámarksútsvar er innheimt í bæjarfélaginu sem er algjörlega óásættanlegt ef litið er til þess að Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið við völd frá því í bæjarstjórnarkosningunum 1990. Því þarf að lækka útsvarið til að skapa meira svigrúm fyrir íbúa og fyrirtæki. Einnig þarf að fara í enn frekari niðurskurð. Ríkisstjórnin hefur farið flatt á þessu, enda hefur lítið fengist út úr skattahækkunum og ekki verið tekið nógu hart á niðurskurði. Enn fleiri fyrirtæki eru tekin til gjaldþrotaskipta og fleiri verða atvinnulausir. Því ætti það að vera algjört forgangsmál að lækka útsvar. Þetta gæti laðað að fyrirtæki sem myndi þá styrkja samkeppnisstöðu sveitarfélagsins og vonandi skapað fleiri störf.

Ekki má gleyma að hugsa um framtíðina þó nú séu erfiðir tímar. Í hverri kreppu felast mörg tækifæri. Eitt þeirra er t.d. að margir setjast á skólabekk og margir fara beint í meistarnám eftir grunnnám. Þetta gerir það að verkum að þeir stúdentar sem leigja stúdentaíbúðir dvelja lengur á stúdentagörðunum og þar af leiðandi lengjast biðlistar. Því er það kjörið tækifæri fyrir Kópavogsbæ að reyna að laða að fyrirtæki til að reisa stúdentagarða á einum besta mögulega stað sem býðst, þ.e. í landi Lundar. Það myndi koma sér sérstaklega vel fyrir þá nemendur sem vilja lifa ódýrt, því að góðir göngustígar liggja frá svæðinu að bæði HR og HÍ. Jafnvel tæki styttri tíma fyrir nemendur HR að ganga í skólann heldur en að fara á einkabíl. Gróðavonin í dag á þessu er ekkert sérlega mikil hins vegar munu þeir stúdentar sem þarna munu búa vera mun líklegri til þess að búa í Kópavogi í framtíðinni. Það er m.a. vegna þess að þá þurfa börnin, ef einhver eru, ekki að skipta um leikskóla eða skóla og einnig munu íbúarnir finna hve gott er að búa í Kópavogi.

Skapa þarf meiri bæjarstemmningu innan Kópavogs. Þegar þetta er ritað er enginn almennilegur staður í Kópavogi þar sem hægt er að setjast niður og fá sér kaffibolla með vinum og vanda-mönnum. Margir möguleikar fyrir þessa stemningu eru í Kópavogi, sérstaklega við Kópavogstún. Auðvelt ætti að vera að laða að veitinga- og kaffihús á þennan stað enda fallegt útsýni og frábær staður á að vera á fallegum sumardögum. Ef vel til tækist þá myndi þetta búa til gott bæjarlíf sem skort hefur hingað til í Kópavogi.

Þetta eru eitt af fáum atriðum sem huga þarf að í aðdraganda komandi kosninga. Flokkurinn þarf að halda því góða fylgi sem hann fékk í kosningunum árið 2006. Ef það á að gerast þarf að höfða til allra aldurshópa, jafnt ungra sem aldna.

Gunnsteinn Finnsson
stjórnarmaður Týs
Deila á Facebook