Greinar
29. mars 2010 › 10:23

Er „græðgi“ góð?

„The point is, ladies and gentlemen, that greed, for lack of a better word, is good. Greed is right. Greed works. Greed clarifies, cuts through, and captures the essence of the evolutionary spirit. Greed, in all of its forms - greed for life, for money, for love, knowledge - has marked the upward surge of mankind, and greed - you mark my words - will not only save Teldar Paper but that other malfunctioning corporation called the USA. Thank you very much.“

Svo mælti persónan Gordon Gekko af miklum sannfæringarkrafti í kvikmyndinni Wall Street. Af mörgum gullkornum Gekkos að þá situr þessi kraftmikla einræða eftir í minninu. Og þótt Gekko gæti verið fyrirmynd allra íslensku útrásarplebbanna, og sé líklega holdgervingur flests þess sem hefur verið að í fjármálalífi heimsins að undanförnu, að þá er inntakið í ræðunni hans merkilegt. Græðgi er kannski ekki vinsælasta orðið nú um mundir, en eins og hinn annars orðheppni Gekko viðurkennir, að þá er það sennilega ekki rétta orðið. Græðgi hefur of neikvæða merkingu. Best væri að nota orðið metnaður yfir inntak ræðunnar. Orð Gekkos eru göfug þótt hann sjálfur hafi verið langt frá því.

Metnaður hefur alla tíð verið eitt öflugasta hreyfiafl mannlegrar þróunar. Metnaður fólks til að ná lengra, til að gera betur, til að reyna að nálgast fullkomnun er, og mun alltaf verða forsenda framfara. Metnaður kemur í veg fyrir stöðnun, skapar samkeppni og opnar fyrir nýjar leiðir. Hann bætir lífskjör, hækkar menntunarstig og gerir fólki kleift að sigrast á erfiðum aðstæðum. Og metnaðurinn gerir fólki kleift að láta drauma sína rætast. Það er þetta sem greinarhöfundur kýs að lesa í orð Gekkos.

Eins og staðan er í landsmálum í dag er mikil hætta á því að allur metnaður í samfélaginu verði kæfður í fæðingu. Það er miklu mun hættara við því að hann fái ekki þrifist í samfélagi undir stjórn vinstri manna. Hvatinn til bæta sig, ná lengra og skara fram úr blandast álíka vel við hugmyndir vinstri manna og mjólk og appelsínusafi. Það tvennt hefur aldrei virkað og mun aldrei virka. Það sem mun á endanum koma Íslandi upp úr kreppunni er krafturinn sem einkaframtakið leysir úr læðingi. Það er í því þar sem nýsköpunin á sér stað, þar sem verðmætin verða til og metnaður einstaklingsins fær notið sín. Möguleikarnir liggja í krafti einkaframtaksins og hann þarf að virkja.

Margar ákvarðanir ríkisstjórnarinnar vega beinlínis að þeim fáu arðbæru atvinnuvegum sem við Íslendingar búum yfir, og ef fram heldur sem horfir er hætt við að allt sem lifandi er í landinu verði kæft niður, s.s. kvikmyndaiðnaðurinn og ferðaþjónustan. Hámarks skattlagning og árásir gegn einkageiranum munu ekki hjálpa okkur að sjá ljósið í svartnættinu. Einkaframtakið og metnaðurinn sem býr innra með fólki er sá eldur sem mun tendra á kyndlinum sem mun lýsa upp á leiðina út úr kreppunni.

Ingvi Þór Sæmundsson
varastjórnarmaður Týs
Deila á Facebook