Greinar
30. mars 2010 › 13:01

Nýtt fjölmiðlafrumvarp menntamálaráðherra

Jóhann Valur SævarssonNú nýlega var kynnt til sögunnar nýtt fjölmiðlafrumvarp af menntamálaráðherra sem segja mætti að sé aðför að tjáningarfrelsi og frelsi fjölmiðla. Þetta er ekki réttlætanlegt í lýðræðislegu samfélagi sem við Íslendingur búum í. Hví er ríkisstjórnin að eyða púðri í þessi mál þegar mun mikilvægari mál eru í gangi?

Engu að síður þá vil ég skrifa aðeins um þetta fjölmiðlafrumvarp þar sem ég tel þetta snerta okkur mjög mikið í daglegu lífi. Hvers vegna er verið að setja þessi lög og hver er tilgangurinn? Það þætti mér gaman að fá svör við. Þessi lög skerða mjög frelsi fjölmiðla og stýrir í raun dagskrá þeirra mun meir heldur en við gerum okkur grein fyrir. Það sem er hvað einna sérkennilegast við lögin er að bannað verður að sýna bannaðar bíómyndir fyrr en eftir kl. 21 á kvöldin, bannað að auglýsa á meðan barnatíma stendur og mælst til þess að 50% af dagskrárefni fjölmiðla verði frá Evrópu. Ef það yrði mælst til þess að 20-50% af dagskrárefni fjölmiðla yrði frá Íslandi þá myndi ég skilja þetta mun betur. Þá værum við að stuðla að verndun íslenskrar tungu, sögu og menningu. Í kjölfarið yrðu íslenskir kvikmyndagerðarmenn himinlifandi og hoppandi um af kæti en það er annað mál.

Það er ekki neinn sérstakur hagur fyrir okkur Íslendinga að 50% af dagskrárefni fjölmiðla sé frá Evrópu. Það er því í raun fráleitt að leggja til þetta frumvarp þar sem eftirspurn eftir þessu efni hefur ekki verið mikil og er það ekki hlutverk stjórnvalda að velja sjónvarpsefni fyrir landsmenn. Einnig þyrfti að hafa eftirlit með því hvort fjölmiðlar fylgi þessum lögum eða ekki og kostnaður fylgir því að halda uppi slíku eftirliti. Það sem mér þykir þó líklegast að gerist ef frumvarpið gengur eða er gengið í gegn er að flestir fjölmiðlar finna sér hjáleiðir líkt og félagi minn lýsti svo um daginn, þar sem svipuð lög eru við gildi í Frakklandi:

,,Í Frakklandi eru útvarpsstöðvar sem spila einungis franskt efni á nóttunni til að viðhalda hlutfallinu rétt og á daginn eru þeir með sína venjulegu dagskrá”

Þetta útskýrir hversu tilgangslaus þessi lög eru fyrir hlutfallslegt sjónvarpsefni. Það þarf hins vegar ekki að ræða hina tvo hlutina mikið sem ég nefndi hér áðan. 
Að lokum vill ég enda þetta á þessum orðum til að útskýra mál mitt frekar:

Segjum sem svo að ég vilji stofna nýja sjónvarpsstöð sem á að sýna íslenskan barnatíma 24/7 og ég ætla að fjármagna hana með auglýsingatekjum. Þetta er kannski heldur gróft dæmi, en ég get engu að síður ekki verið með gott barnaefni handa íslenskum börnum því ég fæ ekki nægt fjármagn inn.

Jóhann Valur Sævarsson
stjórnarmaður Týs
Deila á Facebook