Greinar
7. maí 2010 › 18:00

Hugleiðing

Rafn SteingrímssonLántökur stjórnmálamanna og annarra hafa verið mikið í umræðunni unanfarið í kjölfar rannsóknarskýrslunnar og mikið hefur verið fussað og sveijað yfir ýmsu. Það er svosem eðlilegt að fólk sé reitt, enda var mikið um óeðlilega hluti í gangi í bankakerfinu og jafnvel samfélaginu öllu fyrir hrun.

Hins vegar er það sem mér finnst svo furðulegt við þetta allt er að það virðist vera orðin einhver meginregla að allt hafi þetta nú verið óeðlilegt, og lítið hlustað á þá sem reyna að útskýra einhverjar athafnir, sem við nánari skoðun eru eðlilegar.

Með þessum orðum er ég alls ekki að réttlæta það sem óeðliegt var á þessum tíma. Ég er aðeins að hvetja fólk til að mæta hlutunum með minni fordómum og skoða hvert mál fyrir sig.

Málið er það að lántökur eru ofast eðlilegar. Lántökur eru nauðsynlegur partur af viðskiptalífinu. Í raun algjörlega þarfar til að nýliðun geti verið í öllum atvinnugreinum. Þær auka einnig á fjárfestingu og hagvöxt. Því er nauðsynlegt að skoða hvert mál fyrir sig og ekki dæma heildina út frá þeim sem hegðuðu sér óskynsamlega. Mikið af þessu var óeðlilegt og ber að sjálfsögðu að draga lærdóm af því, en nornaveiðar geta aldrei verið góðar.

Rafn Steingrímsson
gjaldkeri Týs
Deila á Facebook