Stöndum vörð um Kópavog
Kópavogur hefur verið í stöðugri sókn síðustu árin og er nú næst stærsta bæjarfélag landsins með yfir 30.000 íbúa. Hér eru öflugir skólar, gott menningarlíf og frábær tækifæri fyrir fjölskyldufólk að setjast að. Þróun bæjarfélagsins hefur verið í átt að bættum hag íbúanna, þó það hafi vissulega ekki farið varhluta af þrengingum í efnahagslífi þjóðarinnar.
Á næstu dögum kjósa bæjarbúar sér fulltrúa til að stjórna bæjarfélaginu næstu fjögur árin. Þá skiptir miklu máli að vanda val sitt og kjósa þá fulltrúa til áhrifa sem hafa hvað bestu þekkingu og styrk til að Kópavogur haldi áfram að dafna og að hér verði áfram gott að búa.
Þegar gengið verður að kjörborðinu er eðlilegt að spyrja sig að því um hvað kosningabaráttan hér í Kópavogi snúist raunverulega. En hún snýst um framtíð bæjarfélagsins okkar, málefni fólksins sem hér býr og um samfélag okkar Kópavogsbúa.
Nú þegar rétt rúmlega tvær vikur eru eftir af kosningabaráttunni er rétt að fara vel yfir stefnumál flokkanna. Mikil vinna hefur verið lögð í stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Það má með sanni segja að hagsmunir Kópavogsbúa séu settir í forgang og geta sjálfstæðismenn verið stoltir af því að kynna nýja stefnuskrá flokksins. Að mörgu er að huga og mörg málefni bíða átekta og úrvinnslu, þar má helst nefna atvinnumál, skipulagsmál, fjölskyldumál og mál sem lúta að ferðaþjónustu.
Ég legg fullt traust til þess frambærilega fólks sem hlaut kosningu í efstu sæti listans í nýgengu prófkjöri flokksins. Þar er fólk sem hefur víðtæka þekkingu, reynslu og vilja til að gera Kópavog framúrskarandi á öllum sviðum. Baráttan nú verður að snúast um fólkið og bæinn okkar. Það er mín von og vissa að baráttan framundan verði málefnaleg, bæjarbúar verði settir í forgang og fulltrúum flokkanna gert að kynna hvaða framtíðarsýn þeir hafi til að gera Kópavog að enn betra bæjarfélagi á næstu fjórum árum.
Ég trúi því að þegar kjósendur hafa kynnt sér málin muni fólk sjá að Sjálfstæðisflokkurinn hefur á umliðnum árum unnið að mörgum stórkostlegum framfaramálum í Kópavogi.
Sú framtíðarsýn sem flokkurinn hefur , við þessar kosningar, er sú leið sem íbúar Kópavogs vilja fara á næsta kjörtímabili. Ég skora á okkur öll að mæta á kjörstað 29. maí nk. og setja X við D. Þannig tryggjum við öll áframhaldandi uppvöxt í Kópavogi.
Janus Arn Guðmundsson