5. júní 2010 › 21:46
Framhaldsaðalfundur Týs
Framhaldsaðalfundur Týs, f.u.s. í Kópavogi verður á föstudaginn 11. júní kl. 19:30. Þessi framhaldsaðalfundur er haldinn vegna mikillar þátttöku í kjöri formanns og stjórnar á aðalfundinum 13. janúar á þessu ári, og gafst því ekki tími fyrir skýrslu gjaldkera og fulltrúavali í fulltrúaráð og kjördæmisráð.
Allir Týsarar velkomnir....
Sumargleði Týs, f.u.s. í Kópavogi og Stefnis, f.u.s. í Hafnafirði verður haldin á Spot, Bæjarlind 6 í Kópavogi, fimmtudaginn 27. maí.
Hljómsveitin Míkadó og DJ Jóhann Valur munu kynda undir gleðina.
Bjór í boði meðan byrgðir endast fyrir þá sem aldur hafa....
Davíð Þorláksson, lögfræðingur og 2. varaformaður Sambands ungra sjálfstæðismanna mun koma og ræða við gesti um unga kjósendur, SUS, og ungliðahreyfingar almennt, en SUS á einmitt 80 ára afmæli núna á þessu ári.
Fundurinn er í Hlíðarsmára 19 og hefst klukkan 10:00 á morgun laugardaginn 15. maí. Allir velkomnir....
Pub-Quiz Týs, félags ungra sjálfstæðismanna í Kópavogi verður haldið laugardaginn 13. febrúar kl. 20:30 að Hlíðarsmára 19.
Bjór verður á boðstólnum fyrir þá sem aldur hafa og vegleg verðlaun verða í boði fyrir sigurvegara Pub-Quizins!
Allir velkomnir!...
Pókermót Týs verður haldið laugardaginn 24. október.
Spilað verður eftir Texas hold‘em fyrirkomulaginu. Stefnt er að því að 48 spilarar taki þátt svo potturinn verði um 50.000 krónur!
Byrjað verður að spila á slaginu 20:00 og er ráðgert að ljúka mótinu um 23:00. Fólk er því beðið um að mæta tímanlega.
1.000 kr. "buy-in" og mun sigurvegarinn taka pottinn, en einnig verða veitt verðlaun fyrir 2. og 3. sætið.
Léttar veitingar verða á boðstólum fyrir þyrsta spilara.
Fólk er hvatt til að skrá sig "attending" á Facebook