13. desember 2011 › 14:21
Sköpum varanlega atvinnu
Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar lagði til á fundi Sambands ungra sjálfstæðismanna um sjávarútvegsmál í október að sköpuð yrðu um 1400 störf aukalega í kringum sjávarútveginn.
Þessi afstaða hennar þótti mér mjög áhugaverð, sérstaklega í ljósi þess að Ólína er auðvitað eins og flestir sammála því að þessa auðlind beri að nýta með sjálfbærum hætti, og þar að leiðandi væri ekki hægt að veiða meira en gert er í dag.
Það er yfirleitt hrópað húrra fyrir því þegar stjórnmálamenn lofa að skapa störf. En er það alltaf gott? ...
Fimm ástæður þess að refsistefna í fíkniefnalöggjöf er ekki farsæl til að takast á við fíkniefnavandann
Íslensk fíkniefnalöggjöf á rætur sínar að rekja til ársins 1923. Það ár voru lögfest hin svokölluðu ópíumlög, nr. 14/1923 er tóku til tilbúnings og verslunar með ópíum og skyld efni. Á þeim tíma var fíkniefnaneysla miklum mun minni en þekkist í dag, en átti sér þó hugsanlega að einhverju leyti stað meðal efnafólks. Í dag eru í gildi lög um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974. Lögin eru sett að fordæmi erlendra ríkja og taka fyrst og fremst mi...
Það á ekki að þurfa að koma neinum á óvart að fyrsta hreina vinstristjórn sögunnar sé, þegar kjörtímabilið er ekki hálfnað, kominn í íslandsmetabækurnar sem versta ríkisstjórn sögunnar. Ekki bætir úr skák að þessi ríkisstjórn ræður ríkjum á tímum þar sem sjaldan hefur verið jafn mikil þörf fyrir öfluga og hæfa stjórnmálamenn.
Afrekalisti ríkisstjórnarinnar er langur, en ég ætla að láta mér nægja að taka nokkur dæmi af því algera virðingarleysi sem ríkisstjórnin virðist hafa fyrir lögum og rétti í landinu. Fjölmörg dæmi m...
Þingflokkur sjálfstæðismanna lagði fram vantrauststillögu á ríkisstjórnina í síðustu viku . Undirritaður fylgdist með þessum umræðum og ég furðaði mig á því hvernig vinstri mennirnir brugðust við tillögunni. Sjálfstæðisflokkurinn var það orð sem mest var notað í ræðum stjórnarliða og var fortíðin einnig borin óspart upp. Sá gamalkunni frasi að 18 ára valdatíð Sjálfstæðisflokksins hafi leitt allt í glötun var notaður óspart en þann frasa virðast stjórnarliðar alltaf grípa til þegar þeir gerast sekir um að taka slæma ákvörðun eða þegar ...
Hvers vegna vill svo til að 40% Íslendinga eru apar og vilja ójafna skiptingu auðvaldsins, vilja hafa tækifæri til að verða ríkir og vilja að þeir sem minna mega sín hafi það slæmt svo þeir geti fengið auðæfin. Orðtök eins og þeir ríku verða ríkari, og þeir fátæku fátækari hafa verið loðuð við kapítalisma.
Þetta er sú gagnrýni sem við höfum heyrt um kapítalismann, og hljómar þetta sannarlega sem illt afl sem er engum nema auðugum til góðs.
Þá förum við að efast, af hverju erum við svona vitlaus að styðja kapítalism...
Það sem er rétt og það sem þú telur vera rétt er ekki endilega það sama
Óhætt er að segja að vísindi og stjórnmál séu ekki að fara að ganga upp að altarinu á næstu misserum, ef marka má þær ákvarðanir sem stjórnmálamenn hafa tekið í hinum ýmsu málum í gegnum tíðina.
Mikill hluti laga sem sett eru af stjórnmálamönnum eru ekki byggð á neinu sem hægt er að kalla staðreyndir um þau atriði sem lögin snúa að. Lög byggja oftar en ekki á hugmyndum og væntingum fárra aðila á því hvernig þeir halda að hlutirnir muni best ganga fyrir ...
Ég hef framkvæmt mjög óvísindalega könnun meðal fólks sem ég umgengst og er skráð í þjóðkirkjuna, sem var reyndar undarlega hátt hlutfall miðað við hversu margir þeirra eru í raun trúaðir.
Ég spurði ýmissa spurninga varðandi trú þeirra og kirkjuna sem þau eru skráð í, og mun birta niðurstöðurnar hér á mjög svo óvísindalegan hátt sem ég tel þó endurspegla viðhorf margra í samfélaginu.
Svo virðist vera sem að hinn hefðbundni kristni einstaklingur á Íslandi sé tæplega kristinn; það er að segja fylgi ekki þeirri trú sem ríkiskirkjan boða...
Miðað við hversu oft ég var spurður í síðastliðnum hvort og þá hvernig eiginlega ég haldi upp á jólin virðist vera að ýmsir haldi að við trúleysingjar sitjum heima í eymd og volæði þessa mestu hátíð ársins. Svo er þó alls ekki. Mörg heitustu „jólabörn“ sem ég þekki, fólk sem byrjar að baka í nóvember og leggur pening til hliðar allt árið til þess að eiga fyrir rafmagnsreikningnum sem fylgir flóðljósaskreytingum sem lýsa allt fram að Þorra, eru vita trúlaus. Enda eru jólin langt í frá einkahátíð kristinna.
Ég ætla ekki að eyða miklu p...
Tjáningarfrelsi er eitt mikilvægasta vopn fólksins gegn oki ríkisvaldsins og skoðanakúgun. Þetta vopn er hins vegar svo beitt að það getur beinlínis verið skaðlegt í höndum óábyrgra aðila. Af þeirri ástæðu er tjáningarfrelsinu settar ákveðnar nauðsynlegar skorður í lögum, t.d. þannig að einstaklingar mega ekki ganga svo langt að þeir beinlínis ráðist gegn æru annarra.
Undanfarna daga hefur borið nokkuð á hreyfingu sem nefnist „Blóð og heiður“ sem aðhyllist þjóðernishyggju að hætti nýnasista í Evrópu. Meðlimir samtakanna eru fólk sem skýlir sér ...
Jón á fasteign og er með lögheimili í Kópavogsbæ. Jón er með tekjur sem nema 675.000 kr. á mánuði fyrir skatt. Af þessum tekjum eru því 25.000 kr. í hæsta skattþrepinu. Hann greiðir því samtals 46,28% af þeim tekjum í skatt og eftir sitja 13.445 kr. Nú stíflast salernið heima hjá Jóni og hann neyðist til að hringja í vin sinn Fúsa sem er pípari.
Fúsi lagar salernið heima hjá Jóni og þarf Jón að greiða honum samtals 13.445 kr. fyrir viðgerðina. Þar af fara 25,5% í virðisaukaskatt og því standa eftir 10.016 kr. handa Fúsa. Auðvitað greiðir Fú...
Kópavogur hefur verið í stöðugri sókn síðustu árin og er nú næst stærsta bæjarfélag landsins með yfir 30.000 íbúa. Hér eru öflugir skólar, gott menningarlíf og frábær tækifæri fyrir fjölskyldufólk að setjast að. Þróun bæjarfélagsins hefur verið í átt að bættum hag íbúanna, þó það hafi vissulega ekki farið varhluta af þrengingum í efnahagslífi þjóðarinnar.
Á næstu dögum kjósa bæjarbúar sér fulltrúa til að stjórna bæjarfélaginu næstu fjögur árin. Þá skiptir miklu máli að vanda val sitt og kjósa þá fulltrúa til áhrifa sem hafa h...
Nú nýlega var kynnt til sögunnar nýtt fjölmiðlafrumvarp af menntamálaráðherra sem segja mætti að sé aðför að tjáningarfrelsi og frelsi fjölmiðla. Þetta er ekki réttlætanlegt í lýðræðislegu samfélagi sem við Íslendingur búum í. Hví er ríkisstjórnin að eyða púðri í þessi mál þegar mun mikilvægari mál eru í gangi?
Engu að síður þá vil ég skrifa aðeins um þetta fjölmiðlafrumvarp þar sem ég tel þetta snerta okkur mjög mikið í daglegu lífi. Hvers vegna er verið að setja þessi lög og hver er tilgangurinn? Það þætti mér ga...
Umboð og vald eru ein mikilvægustu hugtökin til þess að lýsa því fulltrúalýðræði sem við Íslendingar búum við. Við kjósendur gefum þeim flokkum sem mynda meirihluta ákveðið umboð til þess að fara með völdin í landinu. Eftir kosningarnar í apríl 2009 þá tók meirihluti kjósenda umboðið frá Sjálfstæðisflokknum og fyrsta hreina vinstri stjórnin leit dagsins ljós.
Eftir tæpt ár við stjórnvölinn hefur þessi ríkisstjórn algjörlega farið út fyrir allt það lýðræðislega umboð sem fólkið gaf henni. Það voru fleyg orð Jóhönnu,...
Það hefur verið mikið í umræðunni að efnhagskerfið og stjórnsýslan þurfi að vera gegnsæ og slá þurfi skjaldborg um heimilin. Allir virðast vera sammála um það að setja þurfi hærri viðmið á hinu nýja Íslandi. Umræðan snýst um hver hefur flottustu slagorðin þar sem háleit markmið eru kynnt. Því miður eru þessi markmið hljómfögur en innihaldsrýr. Þessi markmið fela hvorki í sér hvað eigi að gera né hvaða vanda eigi að leysa. Það sem virðist vera mikilvægara er að lofa því að slökkva elda en það skiptir engu hvernig það er gert, hv...
Í tilefni ummæla Þráins Bertelssonar á Bylgjunni í morgun um að þeir sem væru á móti listamannalaunum væru fábjánar ákvað ég að rifja upp örlitla grein sem ég skrifaði í bókina “Gömul gildi og ný” sem kom út á vegum Sambands ungra Sjálfstæðismanna síðastliðið haust. Einn kafli þeirrar greinar fjallaði um listamannalaun og hvers vegna ríkið á almennt ekki að skipta sér af listum. Fer sá kafli hér á eftir, með örlitlum breytingum.
Listamannalaun eru gott dæmi um það af hverju ríkisstyrkir til lista eru slæmir. Þó markmið listamann...
Þegar gera þarf þúsund hluti á sama tíma er oft ráðlagt að einbeita sér að einum hlut í einu. Nú eru slíkir tímar, viðfangsefnin virðast óteljandi og þau eru stór. Úrvinnsla knýjandi mála víðs vegar í þjóðfélaginu tekur langan tíma því ekki er unnt að gera allt í einu. Skref fyrir skref kemur árangur í ljós, alltof hægt því ástandið er svo alvarlegt að það þolir enga bið.
Í hartnær hálft annað ár hefur verið beðið eftir bönkunum til að hægt væri að taka á vanda heimila og fyrirtækja. Bankarnir voru í eigu aðila til b...
Eftir nýafstaðið prófkjör þarf að huga að framhaldinu hjá Sjálfstæðisflokknum í Kópavogi. Vinna þarf að hefjast við mótun stefnuskrár flokksins. Þegar hugurinn er látinn reika, þá eru mörg atriði sem hugsa þarf um.
Eitt sem þarf að gerast strax er að skapa betra rekstrarumhverfi fyrir íbúana og fyrirtækin í sveitar-félaginu. Strax kemur í ljós að hámarksútsvar er innheimt í bæjarfélaginu sem er algjörlega óásættanlegt ef litið er til þess að Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið við völd frá því í bæjarstjórnarkosningunum 1990. Þv...
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi fer fram 20. febrúar nk. Þar veljum við okkar fulltrúa fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Nauðsynlegt er að tryggja fjölbreytileika listans til að ná til sem flestra kjósenda. Í framboði nú eru 12 manns, sumir hoknir af reynslu og aðrir með ferskt blóð og nýjar hugmyndir. Ég tilheyri seinni hópnum, þó svo störf mín innan flokksins hafi verið fjölmörg í gegnum árin. Ég hef starfað með Tý, félagi ungra sjálfstæðismanna, og er í dag formaður félagsins. Auk þess hef ég starfað innan SUS og er varamaður í jafnréttisne...
Mikið af ungu fólki í dag veit ekki hvert það á að stefna að loknu námi. Þeir sem hafa stefnu eru oftar en ekki þeir sem tala um að flytjast af landi brott. Það er sorgleg staðreynd fyrir Ísland. Ég væri að ljúga ef ég myndi segja að ég hefði ekki leitt hugann að þeim möguleika. Í þessari grein ætla ég ekki að leggja öðru ungu fólki orð í munn heldur mun ég taka til eitt atriði sem mér finnst mikilvægt í því að byggja upp mína trú á framtíð landsins og vonandi annarra ungmenna.
Mikilvægt er að á Íslandi starfi öflug fyrirtæki sem afli okkur gjal...
Ég hreinlega trúi því ekki hvað er að eiga sér stað í íslensku samfélagi í dag. Ríkisstjórn þessa lands sem mynduð er af þeim flokkum sem fengu meirihluta atkvæða í síðustu kosningum ætlar að eyðileggja land okkar og stolt. Vinstri grænir voru svaka hetjur fyrir kosningarnar síðastliðið vor. Þeir vildu ekki Icesave, þeir vildu ekki ESB og þeir ætluðu sko að hjálpa heimilunum í landinu. Þeir fengu líka atkvæði út á það!
Nú er ég ekki stuðningsmaður Vinstri grænna. Þó var ég sammála þeim í þessum atriðum. Það þarf að aðstoða heimilin í landinu, ...
Nú er ár liðið frá í því að bankarnir þrír hrundu, neyðarlögin voru samþykkt og Bretar flokkuðu íslenska banka í sama hóp og Al Kaída. Á þessu ári hafa gerst hlutir sem engan óraði fyrir að myndi gerast á þeirra lífstíð. Það væri svo mikið 1929 að heilt efnahagskerfi myndi hrynja, og svo mikið 1949 að beita þyrfti táragasi og reykbombum á mótmælendur á Austurvelli. Til þess að bæta gráu ofan á svart varð ekki aðeins efnahagskreppa, heldur djúp stjórnarkreppa í boði Samfylkingarinnar. Við hrun bankanna settu Samfylkingarmenn upp leikrit se...
Fyrr á árinu heyrði öll þjóðin ýmisleg slagorð mótmælenda, eitt þeirra var vanhæf ríkisstjórn. Barið var á pottalok og alskonar búsáhöld, enda kalla fjölmiðlar þetta búsáhaldarbyltinguna. Furðulegt í raun að kalla þetta byltingu þar sem tveir leiðtogar stjórnarflokkana hafa setið á Alþingi samtals í nærri sex áratugi og bæði hafa verið í ríkisstjórnum undir forystu Sjálfstæðisflokks, og þetta kalla menn endurnýjun.
Þrátt fyrir að vera gamlir jálkar telja leiðtogar Vinstri Græna og Samspillingarinnar að þeir hafi ný úrr...
Atvinnuleysi er nú komið upp í 8,2% og er um 10% atvinnuleysi spáð fyrir komandi mánuði. Útlit fyrir breytingar á atvinnuleysinu til hins betra er ekki að vænta á næstu misserum. Aðstæðurnar eru erfiðar og efnahagsástandið er orðið það alvarlegt að þau fyrirtæki sem ekki eru komin í kæfandi faðm ríkisins eiga á hættu að falla í faðm þess innan tíðar.
Atvinnulífið er að glíma við ein erfiðustu skilyrði síðari tíma. Hátt vaxtastig, lítið framboð á lánsfé, gjaldeyrishöft og rýrnandi kaupmáttur eru alvarlegustu þættirn...
Mikið starf er framundan við endurreisn íslenska efnahagslífsins til að skapa framtíðarskilyrði fyrir komandi kynslóðir hér á landi. Innan Sjálfstæðisflokksins hefur öflugt starf síðastliðna mánuði hjá nokkur hundruð flokksmönnum, konum og körlum, skilað sér í faglegum og vel ígrunduðum ályktunum á síðasta landsfundi . Landsfundurinn er sá fjölmennasti sem haldinn er fyrir þessar kosningar ef litið er til þeirra flokka sem eru í framboði. Það sem er aðdáunarvert er hversu auðmjúk forysta flokksins hefur verið og tilbúin að horfast í augu við fortíðin...
Þegar orðið hátekjuskattur er nefnt eru fyrstu viðbrögð margra jákvæð. Margir hugsa að núna verði loksins þessir vondu bankamenn skattlagðir almennilega. En hver er raunveruleikinn í þessu samhengi? Raunveruleikinn er sá að þess konar skattur bitnar yfirleitt mest á fólki með millitekjur. En hvaða fólk er með millitekjur? Stærsti hluti fólks með millitekjur er fjölskyldufólk, t.d. hjón með þrjú börn, húsnæðis- og bílalán til að borga af og allt það sem fylgir rekstri heimilis. Með gengisfalli krónunnar og verðbólgu hafa flest lán hækkað verulega ...
Nú þegar vinstrisveifla skekur þjóðfélagið og fjölmiðlar svokallaðir keppast við að ata Sjálfstæðisflokkinn auri er mikilvægt að staldra við og íhuga stöðuna. Viljum við virkilega kjósa yfir okkur vinstristjórn? Viljum við virkilega áframhaldandi gjaldeyrishöft og skattahækkanir? Viljum við áframhaldandi virðingarleysi gagnvart stjórnarskránni?
Það er þetta sem núverandi minnihlutastjórn hefur boðið uppá undanfarnar vikur og mánuði. Það gefur alls ekki fögur fyrirheit um framtíðina. Stjórnin sem mynduð var eftir búsáhaldabyltinguna svok...
Að mínu viti eru hvalveiðar íslendinga farnar að líkjast óendanlegum fréttum heimspressunar af pandabjörnum. Mér finnst pandabirnir ómerkileg dýr sem nenna ekki að fjölga sér. Til að forða þeim frá útrýmingarhættu eyða Kínverjar gífurlegum fjármunum, enda borgar það sig margfalt með gjaldeyristekjum erlendra ferðamanna sem koma til Kína til að sjá þá. Í hvert einasta skipti sem einhver af þessum hundruðum dýra fjölga sér verður það að stórri frétt út um allann heim sem er frábært fyrir alla fjölmiðla. Þarna hafa þeir einhverja trausta fréttalind til að ...
Það vita flestir að ástæðan fyrir því að við lærum sögu er svo að við endurtökum hana ekki. Það hefur greinilega vantað athygli hjá bankamönnum veraldarinnar þegar þeir voru í skóla því kreppan í dag hófst á sama hátt og „Kreppan mikla“ sem skall á árið 1929.
Það sem gerðist þá var að verðbréfamarkaðurinn var yfirfullur af lánsfé sem ótraustir bankar voru að gefa út eins og sælgæti og að lokum var svo komið fyrir að markaðurinn gat einungis forðast hrun með því að halda áfram sama hraða vexti. Auðvitað entist það ekki og markaðurin...
Að vera hægri sinnaður í dag er að vera frjálshyggjumaður, eða andstæður vinstri stefnu sem ég ætla líka að koma aðeins inn á. Upprunalega kemur þessi hægri og vinstri aðgreining frá Frakklandi, eftir því hvernig sætaskipan var á stéttarþinginu í frönsku byltingunni þar sem konungssinar sátu hægra megin við forsetastólinn. Hinn upprunalegi hægri maður er íhaldsamur, vildi ekki breyta neinu og hafa allt eins og hann var vanur og þekkti, meðan hinn upprunalegi vinstri maður vildi róttækar breytingar og frelsi. Þessi merking hefur snúist algjörlega v...
Nú þegar Lengjubikarinn er kominn af stað fer maður óumflýjanlega að spyrja hvernig deildin verður í sumar. Allt stefnir í vægast sagt áhugavert fótboltasumar, búið er að segja upp samningum hjá nánast öllum útlendingum í deildinni og aðeins örfá lið sem enn geta leyft sér þann munað. Styrktaraðilar eru á bak og brott og úrvalsdeildin mun ekki heita Landsbankadeildin.
Lítur út fyrir að fótboltafélögin séu að verða ansi illa úti í kreppunni, öll nema Valur sem getur ekki hætt að kaupa. Knattspyrnufélög reiða sig að miklum hluta á styrki og þegar skrúfa...