Taktu þátt
Við Týsarar erum samstilltur og þéttur hópur sem hefur það að markmiði að breiða út stefnu Sjálfstæðisflokksins meðal ungs fólks, og virkja það til starfa innan flokksins. Félagið berst fyrir hagsmunamálum ungs fólks og grundvallast stefna félagsins á frelsi og sjálfstæði þjóðar og einstaklinga, séreignaskipulagi og jafnrétti til tækifæra fyrir alla þjóðfélagsþegna.
Þátttaka í starfi ungra sjálfstæðismanna er góð leið til að hafa áhrif og veita ráðamönnum ríkis og bæja nauðsynlegt aðhald. Það hefur sýnt sig að mörg baráttumál ungra sjálfstæðismanna í gegnum tíðina sem áður þóttu róttæk þykja sjálfsögð í dag.
Oft heyrist sú firra að leiðinlegt sé að starfa í ungliðahreyfingu. Sá sem heldur slíku fram hefur líklegast aldrei starfað með ungliðahreyfingu, enda er það óskráð regla allra ungliðahreyfinga að ekkert sé gert nema að það sé skemmtilegt, enda eru ungir sjálfstæðismenn eru vel þekktir fyrir að slá upp í fögnuð oft og gera þeir það veglega.
Ef þú ert á aldrinum 15-35 ára, átt lögheimili í Kópavogi getur þú tekið þátt. Skráðu þig í félag ungra hérna, á vef Sjálfstæðisflokksins.
Fylgstu svo með hérna á tyr.is, Facebook, eða sendu okkur í stjórninni póst á ![]()