Um félagið

tyr_logo2Stjórn - Lög - Taktu þátt!

Týr, félag ungra sjálfstæðismanna í Kópavogi var stofnað árið sem Kópavogur fékk kaupstaðarréttindi 1955. Félagið dregur nafn sitt af Tý, guði hernaðar, himins og þings í norrænni goðafræði.

Félagið hefur vaxið mikið frá endurvakningu þess árið 2005 og nú eru rúmlega 1.000 félagar á aldrinum 15 - 35 ára innan vébanda félagsins. Markmið Týs er að efla víðsýna og frjálslynda framfarastefnu í þjóðmálum, með hagsmuni allra stétta fyrir augum. Týr styður sjálfstæðisflokkinn að málum og fylgir sjálfstæðisstefnunni, þar sem frelsi einstaklingsins og einkaframtakið ráða ríkjum. Týr gefur út blaðið Týsdag, og kemur það út nokkrum sinnum á ári með Vogum.

Týr stendur fyrir fundum og samkomum með það að leiðarljósi að virkja ungt fólk í starfi flokksins og almennri þjóðfélagsumræðu. Í stjórn félagsins sitja 9 stjórnarmenn að formanni meðtöldum og 3 - 9 varamenn.