Lög Týs, f.u.s. í Kópavogi
28.02.2007
1. KAFLI
Nafn og tilgangur
1. gr.
Félagið heitir Týr, félag ungra sjálfstæðismanna í Kópavogi.
Félagssvæði og lögheimili þess er í Kópavogi.
2. gr.
Markmið félagsins er að breiða út stefnu Sjálfstæðisflokksins meðal ungs fólks, og virkja það til starfa innan flokksins.
Félagið skal á hverjum tíma, berjast fyrir hagsmunamálum ungs fólks, og tryggja að hagsmuna þessara sé gætt við mótun og framkvæmd stefnu Sjálfstæðisflokksins.
Grundvöllur stefnu félagsins er frelsi og sjálfstæði þjóðar og einstaklinga, séreignarskipulag og jafnrétti til tækifæra fyrir alla þjóðfélagsþegna.
3. gr.
Markmiði sínu hyggst félagið ná með því að fylgja eindregið Sjálfstæðisflokknum að málum, styðja hann við kosningar og vinna að hugsjónum hans. Félagið starfar eftir skipulagsreglum Sjálfstæðisflokksins.
2. KAFLI
Meðlimir
4. gr.
Aðild að félaginu eiga ungir sjálfstæðismenn með lögheimili í Kópavogi á aldrinum 15-35 ára, sem ekki eru félagar í öðrum stjórnmálaflokkum en Sjálfstæðisflokknum.
5. gr.
Stjórn félagsins getur með 2/3 atkvæða vikið úr félaginu hverju þeim sem að áliti hennar brýtur lög félagsins eða vinnur gegn stefnu þess. Áfrýja má slíkri ákvörðun stjórnarinnar til félagsfundar.
3. KAFLI
Stjórn félagsins og starfsemi
6. gr.
Málefni félagsins annast stjórn, félagsfundir, almennir fundir og nefndir sem stjórn kýs sér til aðstoðar.
7. gr.
Í stjórn félagsins sitja 9 menn, að formanni meðtöldum, og þrír til níu varamenn. Formaður skal kosinn sérstaklega. Stjórnin skiptir með sér verkum.
8. gr.
Aðalfund félagsins skal halda árlega og ekki síðar en í maí. Til aðalfundar skal boða með minnst viku fyrirvara. Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Reikningar lagðir fram.
3. Umræður um skýrslu og reikninga.
4. Lagabreytingar.
5. Kosning formanns, stjórnar og varastjórnar.
6. Önnur mál.
Kosning skal vera skrifleg ef einhver fundarmanna fer fram á það. Verði atkvæði jöfn, ræður hlutkesti.
Framboð til stjórnar, sem og aðrar tillögur fyrir fund, skulu hafa borist stjórn félagsins eigi síðar en tveimur sólarhringum fyrir aðalfund.
9. gr.
Stjórnarfundi skal halda svo oft sem þurfa þykir og skal stjórn félagsins að jafnaði kappkosta að rækja að öðru leyti hverskonar starfsemi, sem líkleg er til að efla félagið og styrkja málstað þess. Formaður boðar til þeirra og stýrir þeim nema annað sé ákveðið. Stjórnarfundi skal að jafnaði boða með tveggja sólarhringja fyrirvara. Stjórnarfundur er löglegur er meirihluti stjórnarmanna situr fund.
Óski fjórir stjórnarmenn eða fleiri eftir stjórnarfundi ber að halda hann innan viku frá því formanni berst slík ósk.
10. gr.
Almennan félagsfund skal halda ef eigi færri en 20 félagsmenn krefjast þess í skriflegu erindi til stjórnar og greina frá tilefni fundarins. Stjórn skal þá boða til fundar án tafar og skal fundur haldinn innan tveggja vikna frá því að krafa kemur fram. Um almenna félagsfundi og boðun þeirra gilda sömu reglur og um aðalfund eftir því sem við á.
4. KAFLI
Ársgjald o.fl.
11. gr.
Árgjald félagsmanna er frjálst.
12. gr.
Reikningstímabil félagsins er á milli aðalfunda.
5. KAFLI
Lagabreytingar o.fl.
13. gr.
Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi og þarf 2/3 atkvæða allra fundarmanna til þess að breytingin nái fram að ganga. Lagabreytingu skal einnig boða í fundarboði aðalfundar.
14. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.